Fjárhagsstaða norska ríkisins virðist traust. Greint var frá því í morgun að í fyrsta sinn séu verðmæti í norska olíusjóðnum metin meiri en 10 þúsund milljarðar norskra króna. Það samsvarar 136.200 milljörðum íslenskra króna á gengi dagsins í dag.
23 ár eru nú liðin frá stofnun olíusjóðsins. Fjármálaráðuneyti landsins lagði þá, árið 1996, inn tvo milljarða norskra króna. Síðan þá hefur olíuauðurinn að stórum hluta verið lagður í sjóðinn og stjórnendur fjárfest víða um heim.
„Við vorum heppin að finna olíuna. Arðbærni fjárfestinga á alþjóðlegum mörkuðum hefur verið svo mikil að það er hægt að líkja því við að finna olíu upp á nýtt,“ er haft eftir Yngve Slyngstad, yfirmanni sjóðsins, í yfirlýsingu í morgun.
Verðmætaaukninguna má meðal annars rekja til veikingar norsku krónunnar. Þó er talin full ástæða til að fagna áfanganum.
„Umfang sjóðsins hefur farið fram úr öllum þeim væntingum sem við höfðum þegar þessi vegferð hófst. Þetta hefur verið svakalega vel heppnað og það er góð og gild ástæða til að fagna því að svo vel hafi gengið,“ sagði Knut Kjær sem var fyrsti yfirmaður sjóðsins, í samtali við norska fjölmiðla.
Olíusjóðurinn rekur skrifstofur í Osló, Lundúnum, New York, Singapúr og Sjanghæ.
Fimmtíu ár eru í desember frá því að norsk stjórnvöld greindu frá því að olía hafi fundist í Norðursjó.
10.000.000.000.000 norskar krónur nú í norska olíusjóðnum
Atli Ísleifsson skrifar

Mest lesið

Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps
Viðskipti erlent

Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin
Viðskipti erlent

Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað
Viðskipti innlent

Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila
Viðskipti innlent


„Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“
Viðskipti innlent


Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina
Neytendur

Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað
Viðskipti erlent

Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð
Viðskipti innlent