Markahæsti leikmaður riðilsins missir af leiknum á móti Íslandi í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson í Istanbul skrifar 14. nóvember 2019 16:45 Cenk Tosun er meiddur og missir af leiknum í kvöld. Getty/ANP Sport
Liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton er sá markahæsti í riðli Íslands en nú er komið í ljós að hann missir af leiknum í kvöld. Cenk Tosun hefur skorað fimm mörk í aðeins sex leikjum í undankeppni EM 2020. Hann hefur skorað jafnmörg mörk og Frakkinn Olivier Giroud en sá franski hefur spilað tveimur leikjum meira. Tyrkneskir fjölmiðlar segja frá því að Cenk Tosun, sem var valinn í hópinn, verði ekki með Tyrkjum í leikjunum á móti Íslandi og Andorra. Hann er meiddur. Cenk Tosun hefur skorað 5 af 16 mörkum Tyrkja í keppninni en næstum þriðjung marka liðsins. Cenk Tosun skoraði reyndar fjögur af fimm mörkum sínum á móti Moldóvu en hann var með tvö mörk í báðum leikjum. Fimmta markið hans tryggði Tyrklandi aftur á móti 1-0 sigur á Albaníu á 90. mínútu. Cenk Tosun hefur spilað lítið með Everton á leiktíðinni en tryggði liðinu 1-1 jafntefli á móti Tottenham á dögunum. Það er eina úrvalsdeildarmark hans á tímabilinu í þremur leikjum.Markahæstu leikmenn í H-riðlinum: 5 - Cenk Tosun, Tyrklandi (6 leikir) 5 - Olivier Giroud, Frakklandi (8 leikir, 1 víti) 4 - Sokol Cikalleshi, Albaníu (6 leikir, 1 víti) 3 - Kylian Mbappé, Frakklandi (4 leikir) 3 - Kingsley Coman, Frakklandi (5 leikir) 3 - Kolbeinn Sigþórsson, Íslandi (6 leikir) 3 - Kaan Ayhan, Tyrklandi (7 leikir)
EM 2020 í fótbolta Mest lesið „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Sjá meira