Íslenski miðvörðurinn með 67 prósent markanna sem Tyrkir hafa fengið á sig Óskar Ófeigur Jónsson í Antalya skrifar 13. nóvember 2019 13:30 Ragnar Sigurðsson í leiknum á móti Tyrkjum á Laugardalsvellinum í júní. Getty/Oliver Hardt
Tyrkir hafa aðeins fengið á sig þrjú mörk samanlagt í fyrstu átta leikjum sínum í undankeppni EM 2020. Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins, er með tvö af þessum þremur mörkum eða 67 prósent þeirra. Það má búast við því að maður verði settur til höfuðs Ragnars í föstum leikatriðum í leiknum á fimmtudaginn. Sá eini sem hefur skorað hjá Tyrkjum í þessari undankeppni er Frakkinn Olivier Giroud. Hann skoraði markið sitt líkt og Ragnar, eftir fast leikatriðí. Olivier Giroud skallaði boltann í markið eftir hornspyrnu alveg eins og Ragnar gerði í seinna marki sínu. Fyrra mark Ragnars kom eftir aukaspyrnu. Frá seinna marki Ragnars þar til að Olivier Giroud skoraði hjá Tyrkjum í síðasta leik þá léku Tyrkir í 404 mínútur án þess að fá á sig mark í undankeppninni. Mörk Ragnars í Laugardalnum í júní komu bæði í fyrri hálfleiknum og hann kom íslenska liðinu í 2-0. Fyrra markið kom á 21. mínútu þar sem aukaspyrna Jóhanns Berg Guðmundssonar skoppaði á teignum og barst til Ragnars sem skallaði boltann í markið úr markteignun. Seinna mark Ragnars kom á 32. mínútu en Birkir Bjarnason skallaði þá áfram hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar og Ragnar var mættur á fjærstöngina til að skalla boltann inn af stuttu færi.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Grikkir gerðu Svíum grikk á lokasekúndum leiksins Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Óvíst hver tekur við af Schmeichel Sara Björk snýr heim í Hauka FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira