Vann með Giuliani í Úkraínu að skipan Trump Samúel Karl Ólason skrifar 20. nóvember 2019 14:14 Þetta kemur fram í yfirlýsingu Sondland í opinberum vitnaleiðslum sem eiga sér nú stað vegna rannsóknar fulltrúadeildarinnar á því hvort Trump hafi brotið af sér í starfi. AP/Susan Walsh
Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu, segir að hann, Rudy Guiliani, einkalögmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og aðrir hafi beitt yfirvöld Úkraínu þrýstingi með því markmiði að fá Úkraínumenn til að hefja tvær rannsóknir sem myndu nýtast Trump með pólitískum hætti, vegna þess að Trump hafi skipað þeim að gera það. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Sondland í opinberum vitnaleiðslum sem eiga sér nú stað vegna rannsóknar fulltrúadeildarinnar á því hvort Trump hafi brotið af sér í starfi.Sondland segir að hann hafi ekki viljað vinna með Giuliani en hafi talið að hann ætti engra kosta völ þar sem Trump hafi skipað honum að gera það. Hann segir Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, einnig hafa komið að kröfunni og að Pompeo hafi jafnvel verið undirlægja Giuliani varðandi utanríkisstefnu Bandaríkjanna gagnvart Úkraínu. Með þessu vill Sondland sýna fram á að hann hafi ekki tekið þátt í því sem kallað hefur verið „skugga-utanríkisstefna“ Bandaríkjanna gagnvart Úkraínu. Þetta hafi verið opinber stefna. Enn fremur segir Sondland að hann hafi vitað að það væri rangt að stöðva afhendingu tæplega 400 milljóna dala neyðaraðstoðar, sem Bandaríkjaþing hafði samþykkt, til Úkraínu. Yfirvöld landsins treystu á þá aðstoð til að verjast aðgerðum Rússa. Hann segist ítrekað hafa reynt að fá svör við því af hverju neyðaraðstoðin var fryst en ekki fengið svör. Seinna hafi hann orðið fullviss um að aðstoðin myndi ekki berast fyrr en Volodymir Zelensky, forseti Úkraínu, lýsti því opinberlega yfir að áðurnefndar rannsóknir yrðu hafnar, eins og Giuliani hafi farið fram á.Sjá einnig: Sluppu með naumindum við að verða við kröfum Trump „Ég vann í góðri trú,“ segir Sondland.Hægt er að fylgjast með vitnaleiðslunum hér að neðan.Sondland segir einnig að þó þetta væri í fyrsta sinn sem hann bæri vitni opinberlega hefði hann áður svarað spurningum þingmanna í um tíu klukkustundir. Hann hefði gert það þrátt fyrir að Hvíta húsið og Utanríkisráðuneytið hafi skipað honum að svara ekki spurningum þingmanna. Hann hafi þó tekið þá ákvörðun að mæta í vitnaleiðslur því hann átti sig á alvarleika málsins. Annað en þeir mörgu meðlimir ríkisstjórnarinnar sem hafa framfylgt skipunum Hvíta hússins um að mæta ekki. Í yfirlýsingu sinni kvartar Sondland yfir því að hafa ekki notið aðstoðar Utanríkisráðuneytisins við að safna upplýsingum vegna yfirheryslanna. Hann hafi sóst eftir skjölum og ekki fengið þau, jafnvel þó engin leynd hvíli á þeim. Trump hefur ítrekað lýst því yfir að hann þekki Sondland ekki, sem er sagður hafa lagt milljón dali í kosningasjóði forsetans og var tilnefndur í embætti sendiherra af Trump. Sondland segir þó í yfirlýsingu sinni að hann þekki Trump vel og hafi varið miklum tíma með honum. Adam Schiff, sem stýrir rannsókn fulltrúadeildarinnar, sló á svipaða strengi við upphaf vitnaleiðslanna í dag og rifjaði upp að ákærur gegn Richard Nixon hafi að hluta til verið vegna þess að hann virti ekki stefnur þingsins.Rannsóknir sem byggja á samsæriskenningum Forsetinn og bandamenn hans hafa sakað Joe Biden um spillingu vegna þess að hann þrýsti á úkraínsk stjórnvöld að reka saksóknara á sama tíma og Hunter, sonur hans, sat í stjórn olíufyrirtækisins. Það eigi Biden að hafa gert til að stöðva rannsókn sem beindist að Burisma, samkvæmt kenningu Trump-liða og vill forsetinn að Úkraínumenn rannsaki það. Ekkert hefur þó komið fram sem bendir til þess að Biden-feðgarnir hafi gert nokkuð ólöglega eða að rannsókn hafi yfir höfuð staðið yfir á Burisma á þeim tíma sem þáverandi varaforsetinn reyndi að koma saksóknara frá. Sú viðleitni var hluti af alþjóðlegum þrýstingi þar sem vestræn ríki töldu saksóknarann ljón í vegi þess að uppræta langvarandi spillingu í Úkraínu. Hin rannsóknin tengist samsæriskenningu um tölvupóstþjón landsnefndar Demókrataflokksins sem rússneskir hakkarar brutust inn í fyrir forsetakosningarnar 2016 og láku vandræðalegum póstum í gegnum Wikileaks. Trump hefur lengi verið gramur vegna niðurstöðu bandarísku leyniþjónustunnar að rússnesk stjórnvöld hafi háð upplýsingastríð og framið tölvuinnbrot til að hjálpa honum til sigurs. Trump og bandamenn hans hafa því haldið þeirri hugmynd á lofti um að það hafi í reynd verið úkraínskir útsendarar sem frömdu innbrotið í tölvupóstþjón demókrata og að þeir hafi bókstaflega falið áþreifanlegan tölvupóstþjón í Úkraínu. Markmiðið hafi verið að koma sök á Rússa. Hugmyndin grundvallast meðal annars á þeirri ranghugmynd að Crowdstrike, tölvuöryggisfyrirtæki frá Kaliforníu sem rannsakaði tölvuinnbrotið, hafi í raun verið í eigu úkraínsks auðkýfings. Crowdstrike, og alríkislögreglan FBI, komust að því að rússneskir hakkarar hefðu staðið að innbrotinu. Trump nefndi Crowdstrike sérstaklega á nafn í símtali sínu við Zelensky í júlí. Tölvupóstþjónn demókrata sem brotist var inn í var heldur ekki eitt áþreifanleg tæki eins og kenningin byggir á heldur skýþjónusta. Sérfræðingar segja þessa samsæriskenningu runna undan rifjum Rússa.
Bandaríkin Donald Trump Ákæruferli þingsins gegn Trump Úkraína Tengdar fréttir Trump íhugar að reka óháðan eftirlitsmann og starfsmannastjórann Opinberar vitnaleiðslur í rannsókn Bandaríkjaþings á Trump forseta hefjast í dag. Hann er sagður hafa íhugað að reka óháðan eftirlitsmann sem tilkynnti um kvörtun uppljóstrara sem kom rannsókninni af stað. 13. nóvember 2019 11:00 Bjóða Trump að svara spurningum þingmanna Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, bauð í gær Donald Trump, forseta, að mæta á fund þingmanna og svara spurningum þeirra varðandi rannsókn fulltrúadeildarinnar á mögulegum embættisbrotum forsetans. 17. nóvember 2019 23:33 Sondland sagðist fara eftir skipunum Trump Fyrrverandi meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins viðurkennir að hafa lagt til að hylja gögn um símtal á milli Trump og Zelensky. Þrátt fyrir það sagðist hann ekki hafa heyrt neitt óviðeigandi í símtalinu. 16. nóvember 2019 23:36 Ætlun Trumps sé að vekja ótta hjá þeim sem hyggjast bera vitni Opinberar vitnaleiðslur rannsóknar Bandaríkjaþings á mögulegum embættisbrotum Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, standa nú yfir en í dag bar Marie Yovanovitch, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu vitni. 15. nóvember 2019 18:48 Sagði símtalið umdeilda óviðeigandi Alexander Vindman, meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, segir umdeilt símtal Donald Trump og Volodymir Zelensky, forseta Bandaríkjanna og Úkraínu, hafa verið óviðeigandi. Það hefði ekki verið rétt af Trump að biðja erlendan þjóðarleiðtoga að rannsaka bandarískan borgara og pólitískan andstæðing hans. 19. nóvember 2019 15:30 „Allt hvíldi á rannsóknum“ Sérstakur erindreki Donalds Trump Bandaríkjaforseta greindi starfandi sendiherranum í Úkraínu að allt sem úkraínsk stjórnvöld sóttust eftir frá Bandaríkjastjórn hengi á því að þau létu rannsaka pólitíska andstæðinga Trump. 13. nóvember 2019 17:00 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira
Trump íhugar að reka óháðan eftirlitsmann og starfsmannastjórann Opinberar vitnaleiðslur í rannsókn Bandaríkjaþings á Trump forseta hefjast í dag. Hann er sagður hafa íhugað að reka óháðan eftirlitsmann sem tilkynnti um kvörtun uppljóstrara sem kom rannsókninni af stað. 13. nóvember 2019 11:00
Bjóða Trump að svara spurningum þingmanna Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, bauð í gær Donald Trump, forseta, að mæta á fund þingmanna og svara spurningum þeirra varðandi rannsókn fulltrúadeildarinnar á mögulegum embættisbrotum forsetans. 17. nóvember 2019 23:33
Sondland sagðist fara eftir skipunum Trump Fyrrverandi meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins viðurkennir að hafa lagt til að hylja gögn um símtal á milli Trump og Zelensky. Þrátt fyrir það sagðist hann ekki hafa heyrt neitt óviðeigandi í símtalinu. 16. nóvember 2019 23:36
Ætlun Trumps sé að vekja ótta hjá þeim sem hyggjast bera vitni Opinberar vitnaleiðslur rannsóknar Bandaríkjaþings á mögulegum embættisbrotum Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, standa nú yfir en í dag bar Marie Yovanovitch, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu vitni. 15. nóvember 2019 18:48
Sagði símtalið umdeilda óviðeigandi Alexander Vindman, meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, segir umdeilt símtal Donald Trump og Volodymir Zelensky, forseta Bandaríkjanna og Úkraínu, hafa verið óviðeigandi. Það hefði ekki verið rétt af Trump að biðja erlendan þjóðarleiðtoga að rannsaka bandarískan borgara og pólitískan andstæðing hans. 19. nóvember 2019 15:30
„Allt hvíldi á rannsóknum“ Sérstakur erindreki Donalds Trump Bandaríkjaforseta greindi starfandi sendiherranum í Úkraínu að allt sem úkraínsk stjórnvöld sóttust eftir frá Bandaríkjastjórn hengi á því að þau létu rannsaka pólitíska andstæðinga Trump. 13. nóvember 2019 17:00