Fór snemma í jólafrí og kemur ekki aftur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2019 16:30 Chandler Smith í leik með Snæfelli í vetur. Vísir/Vilhelm
Chandler Smith hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Snæfell í Domino´s deild kvenna í körfubolta. Chandler Smith var ekki með Snæfelli á móti Skallagrími í gær og missti líka af leiknum á undan vegna veikinda. Snæfell tilkynnti síðan í gær að Snæfell og Chandler Smith hafi náð samkomulagi um að sú síðarnefnda spili ekki meira með liðinu á tímabilinu. Þjálfarar Snæfellsliðsins eru í leit að nýjum leikmanni sem kemur í fyrsta leik á nýju ári. Chandler Smith var með 14,5 stig og 5,0 stoðsendingar að meðaltali í leik í átta deildarleikjum með Snæfelli í vetur. Hún lækkaði hins vegar úr 16,2 stigum og 5,8 stoðsendingum í leik í október niður í 11,7 stig og 3,7 stoðsendingar að meðaltali í leik í nóvember þar sem hún hitti aðeins úr 17 prósent þriggja stiga skota sinna. Snæfellsliði hefur aðeins unnið tvo af tíu deildarleikjum sínum og þarf hreinlega á munu meira framlagi frá bandarískum leikmanni sínum en því sem Chandler Smith var að skila. Hin bandaríska Keira Breeanne Robinson fór sem dæmi á kostum gegn kanalausu Snæfellsliði í gær og var með 35 stig, 11 fráköst, 8 stolna bolta og 7 stoðsendingar í 76-65 sigri Skallagríms á Snæfelli. Snæfell verður því einnig án bandarísks leikmanns í síðustu þremur leikjum sínum fyrir jól en næsti leikur er á móti Grindavík á miðvikudagskvöldið. Grindavík er einmitt eitt af þremur liðum Domino´s deildar kvenna sem hefur skipt um bandarískan leikmann á þessu tímabili en hin eru Haukar og Breiðablik. Snæfell bætist síðan í hópinn þegar nýr bandarískur leikmaður kemur í janúar.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Fleiri fréttir „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjá meira