Skarpasta myndin af yfirborði Mars til þessa Kjartan Kjartansson skrifar 5. mars 2020 14:19 Hluti af víðmynd Curiosity sem var sett saman úr myndum sem voru teknar á yfirborði Mars frá 24. nóvember til 1. desember árið 2019. NASA/JPL-Caltech/MSSS
Víðmynd sem bandaríski könnunarjeppinn Curiosity tók í fyrra er sú skarpasta sem tekin hefur verið af yfirborði Mars. Bandaríska geimvísindastofnunin NASA birti myndina í gær sem er samsett úr fleiri en þúsund myndum og 1,8 milljörðum díla. Það tók Curiosity meira en sex og hálfa klukkustund yfir fjögurra daga tímabil í nóvember að taka myndirnar sem voru síðan settar saman í víðmyndina, að því er segir í tilkynningu á vef NASA. Myndirnar voru teknar í Glen Torridon, svæði í hlíðum Sharp-fjalls sem Curiosity kannar nú á meðan flestir starfsmenn leiðangursins voru í fríi yfir þakkargjörðarhátíðina í Bandaríkjunum. Á myndinni má sjá sendinn og grýttan jarðveginn í næsta umhverfi könnunarjeppans, hóla og hlíðar og bláleitan himininn í fjarska. Curiosity lenti í Gale-gígnum á Mars í ágúst árið 2012. Frá árinu 2014 hefur jeppinn rúntað um rætur Sharp-fjalls í miðju gígsins og leitað að ummerkjum um fljótandi vatn sem talið er að hafi flætt yfir yfirborð Mars í fyrndinni. Hér má finna víðmyndir Curiosity í hæstu mögulegu upplausn.
Mars Vísindi Tækni Mest lesið Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Innlent „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Innlent Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Innlent Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Innlent Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Innlent Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Erlent Fleiri fréttir Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Sjá meira