Tvær nýjar brýr yfir Þjórsá í bígerð á þessu og næsta ári Kristján Már Unnarsson skrifar 15. maí 2020 22:52 Brú sem áformuð er yfir Þjórsá við Búrfell ofan Þjófafoss. Hún verður göngu- og reiðbrú til að auðvelda aðgengi að fögru útvistarsvæði. Teikning/Landsvirkjun.
Tvær nýjar brýr yfir Þjórsá, sem nú eru í bígerð í tengslum við virkjanaframkvæmdir, gætu haft mikla þýðingu fyrir samgöngur og ferðaþjónustu í uppsveitum Suðurlands. Brú á móts við Árnes styttir vegalengdir um tugi kílómetra milli efstu byggða í Árnes- og Rangárvallasýslu. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Það hefur lengi verið draumur Sunnlendinga að fá brú yfir Þjórsá á móts við þorpið Árnes. Með slíkri brú yrði aðeins sjö kílómetra leið fyrir íbúana þar til að heilsa upp á næstu nágranna sína handan ár í Rangárvallasýslu, í stað þess að aka sextíu kílómetra leið. Svona mun Þjórsárbrúin á móts við Árnes líta út. Mynd/Landsvirkjun. Vonir voru raunar bundnar við það sumarið 2009, þegar stefndi í virkjanaframkvæmdir, að brúarsmíðin hæfist þá um haustið, eins og fram kom í þessari frétt Stöðvar 2 frá þeim tíma: Sjá einnig hér: Vonast til að smíði nýju Þjórsárbrúarinnar hefjist í haust En núna gæti farið að hylla undir framkvæmdir því forstjóri Landsvirkjunar upplýsti í vikunni að fyrirtækið stefndi að ákvörðun fyrir áramót um hvort hefja ætti undirbúningsframkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar. „Á svipaðan hátt og við höfum gert í síðustu virkjunum, í Búrfelli, Þeistareykjum og á Búðarhálsi, þá svona nokkrum árum áður en við byrjuðum framkvæmdirnar, þá fórum við í aðstöðusköpun, - vegagerð og annað,“ segir Hörður Arnarson forstjóri. Sjá einnig hér: Ný akleið opnast milli Mývatns og Húsavíkur Smíði brúar yfir Þjórsá ofan við fossinn Búða ásamt lagningu tengivega við þjóðvegakerfið myndi þá hefjast á næsta ári. Nýja Þjórsárbrúin kæmi fyrir ofan eyjuna Árnes og fossinn Búða.Kort/Hafsteinn Þórðarson. „Þetta mundi nýtast virkjuninni en mundi ekki hvað síst nýtast nærsamfélaginu og skapa, held ég, mikil samlegðaráhrif þarna í sveitinni,“ segir Hörður. Landsvirkjun hefur raunar á hálfrar aldar starfstíma sínum lagt alls um 650 kílómetra af vegum eða sem samsvarar hálfum hringveginum. Sjá nánar hér: Vegir Landsvirkjunar á við hálfan hringveginn í lengd „Allar svona framkvæmdir gerum við í samráði við Vegagerðina. Við höfum gert marga vegi hér á Íslandi, erum núna meðal annars að gera Þeistareykjaveg, - með hringtengingu þar frá Þeistareykjum í Mývatnssveit. Svo afhendum við Vegagerðinni veginn þar á eftir,“ segir forstjóri Landsvirkjunar. En Landsvirkjun áformar líka aðra brú yfir Þjórsá, á móts við Búrfell ofan við Þjófafoss, sem smíða á í sumar. Brúin við Búrfell verður göngu- og reiðbrú.Mynd/Landsvirkjun. Sú brú verður þó ekki fyrir bíla heldur fyrir gangandi vegafarendur og hestamenn, ætluð til að tryggja almenningi aðgang að Búrfellsskógi og fögru útvistarsvæði þar í kring, samhliða því sem ökuleið um Búrfellsstöð verður lokað af öryggisástæðum. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Landsvirkjun Vatnsaflsvirkjanir Samgöngur Skeiða- og Gnúpverjahreppur Rangárþing ytra Ásahreppur Hrunamannahreppur Bláskógabyggð Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Landsvirkjun býst við sterkri eftirspurn þegar kreppu lýkur Forstjóri Landsvirkjunar spáir því að sterk eftirspurn verði eftir íslenskri orku þegar kreppunni lýkur og skoðar fyrirtækið núna hvort hægt verði að taka ákvörðun síðar á árinu um að hefja undirbúningsframkvæmdir við næstu stórvirkjun. 12. maí 2020 22:14 Landsvirkjun ræðst í milljarðaframkvæmdir og gefur stórnotendum allt að 25 prósent afslátt Landsvirkjun hyggst verja um 12 milljörðum króna í ýmsar framkvæmdir, þróunarverkefni auk þess að veita stórnotendum sínum afslætti. 28. apríl 2020 11:01 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
Landsvirkjun býst við sterkri eftirspurn þegar kreppu lýkur Forstjóri Landsvirkjunar spáir því að sterk eftirspurn verði eftir íslenskri orku þegar kreppunni lýkur og skoðar fyrirtækið núna hvort hægt verði að taka ákvörðun síðar á árinu um að hefja undirbúningsframkvæmdir við næstu stórvirkjun. 12. maí 2020 22:14
Landsvirkjun ræðst í milljarðaframkvæmdir og gefur stórnotendum allt að 25 prósent afslátt Landsvirkjun hyggst verja um 12 milljörðum króna í ýmsar framkvæmdir, þróunarverkefni auk þess að veita stórnotendum sínum afslætti. 28. apríl 2020 11:01