3 dagar í Pepsi Max: Lennon bara með 2 af 22 mörkum sínum á gervigrasi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2020 12:00 Steven Lennon fagnar einu marka sinna fyrir FH í Pepsi Max deildinni. Vísir Pepsi Max deild karla fer aftur af stað 13. júní næstkomandi. Það er mikil spenna fyrir því að boltinn fari aftur að rúlla en lengsta undirbúningstímabil í fótboltaheiminum varð enn lengra þökk sé kórónuveirunni. Vísir ætlar að telja niður í fyrsta leik með því að rifja upp eitt og annað frá sögu úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. Í dag eru 3 dagar í fyrsta leikinn sem verður á milli Vals og KR á Hlíðarenda 13. júní næstkomandi. FH-ingurinn Steven Lennon hefur skorað 22 mörk í úrvalsdeildinni undanfarin tvö tímabil þar af 13 mörk í 19 leikjum í Pepsi Max deildinni í fyrrasumar. Það er hins vegar mikill munur á markaskori Steven Lennon á náttúrulegu grasi og á gervigrasi þessi tvö síðustu sumur þar sem gervigrasvöllunum hefur fjölgað mikið í deildinni. Enginn skoraði fleiri mörk í Pepsi Max deildinni í fyrra á náttúrulegu grasi en Lennon skoraði tólf af þrettán mörkum sínum á grasi. Lennon skoraði tveimur grasmörkum meira en þeir Gary Martin og Elfar Árni Aðalsteinsson. Sumarið á undan skoraði Lennon 8 af 9 mörkum sínum á grasi og aðeins tveir leikmenn skoruðu fleiri grasmörk en hann eða þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Ásgeir Sigurgeirsson. Steven Lennon hefur alls skorað 20 grasmörk undanfarin tvö tímabil eða sex grasmörkum meira en næsti maður. Lennon er á þessum tveimur sumrum með 20 mörk í 33 grasleikjum eða 0,61 mörk að meðaltali í leik. Hann hefur aftur á móti aðeins skorað 2 mörk í 8 gervigrasleikjum eða 0,25 mörk að meðaltali. Bæði gervigrasmörkin hans og öll þrjú gervigrasmörkin hans frá og með 2017 hafa komið á Valsvellinum að Hlíðarenda. Flest mörk á náttúrulegu grasi í úrvalsdeild karla 2018-19: Steven Lennon 20 Elfar Árni Aðalsteinsson 14 Pálmi Rafn Pálmason 12 Hilmar Árni Halldórsson 12 Thomas Mikkelsen 12 Hallgrímur Mar Steingrímsson 10 Brandur Hendriksson Olsen 10 Ásgeir Sigurgeirsson 10 Gary John Martin 10 Steven Lennon skorar fyrir FH á grasvellinum í Kaplakrika.Vísir/Daníel Steven Lennon í Pepsi Max deildinni 2019: Grasleikir/mörk: 14/12 Gervigrasleikir/mörk: 5/1 Steven Lennon í Pepsi deildinni 2018: Grasleikir/mörk: 19/8 Gervigrasleikir/mörk: 3/1 Steven Lennon 2018-19: Grasleikir/mörk: 33/20 Gervigrasleikir/mörk: 8/2 Pepsi Max-deild karla FH Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Sjá meira
Pepsi Max deild karla fer aftur af stað 13. júní næstkomandi. Það er mikil spenna fyrir því að boltinn fari aftur að rúlla en lengsta undirbúningstímabil í fótboltaheiminum varð enn lengra þökk sé kórónuveirunni. Vísir ætlar að telja niður í fyrsta leik með því að rifja upp eitt og annað frá sögu úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. Í dag eru 3 dagar í fyrsta leikinn sem verður á milli Vals og KR á Hlíðarenda 13. júní næstkomandi. FH-ingurinn Steven Lennon hefur skorað 22 mörk í úrvalsdeildinni undanfarin tvö tímabil þar af 13 mörk í 19 leikjum í Pepsi Max deildinni í fyrrasumar. Það er hins vegar mikill munur á markaskori Steven Lennon á náttúrulegu grasi og á gervigrasi þessi tvö síðustu sumur þar sem gervigrasvöllunum hefur fjölgað mikið í deildinni. Enginn skoraði fleiri mörk í Pepsi Max deildinni í fyrra á náttúrulegu grasi en Lennon skoraði tólf af þrettán mörkum sínum á grasi. Lennon skoraði tveimur grasmörkum meira en þeir Gary Martin og Elfar Árni Aðalsteinsson. Sumarið á undan skoraði Lennon 8 af 9 mörkum sínum á grasi og aðeins tveir leikmenn skoruðu fleiri grasmörk en hann eða þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Ásgeir Sigurgeirsson. Steven Lennon hefur alls skorað 20 grasmörk undanfarin tvö tímabil eða sex grasmörkum meira en næsti maður. Lennon er á þessum tveimur sumrum með 20 mörk í 33 grasleikjum eða 0,61 mörk að meðaltali í leik. Hann hefur aftur á móti aðeins skorað 2 mörk í 8 gervigrasleikjum eða 0,25 mörk að meðaltali. Bæði gervigrasmörkin hans og öll þrjú gervigrasmörkin hans frá og með 2017 hafa komið á Valsvellinum að Hlíðarenda. Flest mörk á náttúrulegu grasi í úrvalsdeild karla 2018-19: Steven Lennon 20 Elfar Árni Aðalsteinsson 14 Pálmi Rafn Pálmason 12 Hilmar Árni Halldórsson 12 Thomas Mikkelsen 12 Hallgrímur Mar Steingrímsson 10 Brandur Hendriksson Olsen 10 Ásgeir Sigurgeirsson 10 Gary John Martin 10 Steven Lennon skorar fyrir FH á grasvellinum í Kaplakrika.Vísir/Daníel Steven Lennon í Pepsi Max deildinni 2019: Grasleikir/mörk: 14/12 Gervigrasleikir/mörk: 5/1 Steven Lennon í Pepsi deildinni 2018: Grasleikir/mörk: 19/8 Gervigrasleikir/mörk: 3/1 Steven Lennon 2018-19: Grasleikir/mörk: 33/20 Gervigrasleikir/mörk: 8/2
Flest mörk á náttúrulegu grasi í úrvalsdeild karla 2018-19: Steven Lennon 20 Elfar Árni Aðalsteinsson 14 Pálmi Rafn Pálmason 12 Hilmar Árni Halldórsson 12 Thomas Mikkelsen 12 Hallgrímur Mar Steingrímsson 10 Brandur Hendriksson Olsen 10 Ásgeir Sigurgeirsson 10 Gary John Martin 10
Steven Lennon í Pepsi Max deildinni 2019: Grasleikir/mörk: 14/12 Gervigrasleikir/mörk: 5/1 Steven Lennon í Pepsi deildinni 2018: Grasleikir/mörk: 19/8 Gervigrasleikir/mörk: 3/1 Steven Lennon 2018-19: Grasleikir/mörk: 33/20 Gervigrasleikir/mörk: 8/2
Pepsi Max-deild karla FH Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Sjá meira