Hafnfirðingar ósáttir við lokun Garðahraunsvegar Samúel Karl Ólason skrifar 26. júní 2020 06:44 Rósa segir að fjallað verði um málið í skipulags- og byggingarráði á þriðjudag. Vísir/Vilhelm
Yfirvöld Hafnarfjarðarbæjar fengu ekki upplýsingar um lokun Garðabæjar á Garðahraunsvegi og hafði þeim verið lofað að það yrði ekki gert fyrr en nýr vegur yrði lagður. Þetta segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, við Fréttablaðið og segir hún einnig að þetta hafi gríðarleg áhrif á allt umferðarflæði um Norðurbæinn og þjónustuna á Hrafnistu. Samkvæmt Fréttablaðinu hafa íbúar beggja sveitarfélaga lýst yfir óánægju með lokunina. Þeir þurfi að fara lengri leið og umferð hafi aukist í íbúðahverfinu í Vöngunum. Rósa segir að fjallað verði um málið í skipulags- og byggingarráði á þriðjudag. „Við erum að undirbúa viðbrögð okkar og ég á von á því að það verði gert með mjög ákveðnum hætti,“ segir hún. Guðjón Erling Friðriksson, bæjarritari, segist ekki vita til þess að loforð hafi verið gefið varðandi lokun vegarins og nýja tengingu. Ekki liggi fyrir hvenær nýr vegur verði lagður. Hann segir einnig að betur hefði mátt standa að því að tilkynna málið til Hafnarfjarðar. Guðjón segir þó að ekki standi til að opna veginn á ný. „Við getum kannski gert þetta á einhvern hátt betur en við erum skuldbundin gagnvart íbúum á skipulagssvæði Garðahrauns. Að þarna eigi ekki að vera gegnumakstur,“ segir hann.
Hafnarfjörður Garðabær Samgöngur Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Sjá meira