Lífið samstarf

Besta vininn með í ferðalagið

Gæludýr.is
Skottgrindur eru yfirleitt stillanlegar og henta í flesta bíla.
Skottgrindur eru yfirleitt stillanlegar og henta í flesta bíla.

Ferðalög, útivera, grill, sól, hiti, rigning og stundum rok. Nú er sumarið brostið á og munu flestir eyða því innanlands í ár. Ferðafyrirtæki hafa í auknum mæli opnað fyrir það að Íslendingar geti ferðast með dýrin sín með sér innanlands og því líklega aldrei fleiri hundar á faraldsfæti en í ár.

Kong er frábær afþreying fyrir hunda í öllum stærðum. Hægt er að frysta Kong með fyllingu og eiga tilbúið fyrir ferðalagið.

Hvað þarf að hafa í huga?

Ýmis atriði er gott að hafa í huga áður en lagst er í ferðalög með heimilishundinn en eitt af því fyrsta er að kanna hvort hundurinn sé leyfilegur á áfangastað.

Má hafa hund á staðnum?

Mjög misjafnt er hvort gististaðir leyfi hunda, hvort það fylgi því aukalegur kostnaður að mæta með hund eða hvort einhverjar takmarkanir séu á stærð hundsins eða kröfur gerðar um umgengni með hundinn.

Hversu langt er ferðalagið?

Annað sem gott er að hugsa um er ferðamátinn og tímalengd ferðalagsins. Á að ferðast í bíl, með flugi eða ferju eða jafnvel öllu þessu þrennu og hvað er hægt að bjóða dýrinu upp á langt ferðalag án hléa? Hefur hundinn sýnt einkenni bílveiki á fyrri ferðalögum? 

Hundar þola fæstir að vera marga klukkutíma sleitulaust á ferðalagi svo gott er að gera ráð fyrir að stoppin gætu orðið aðeins fleiri til að rétta úr sér, pissa á nokkrum vel völdum stöðum og ekki síst að fá vatnssopa. Nauðsynlegt er að missa hundinn ekki lausan úr bílnum heldur gæta þess að hann sé í taum í ókunnu umhverfi.

Öryggi á ferð

Þegar ferðast er með hunda þarf að gæta þess að vel lofti um þá í bílnum og að þeir séu örugglega festir í búri eða í belti og best er ef búið er að æfa hundinn í styttri ferðum áður en lagst er í langferðir. Aldrei má skilja hund eftir í lokuðum bíl í hita og sól.

Ráð við bílveiki

Bílveiki háir sumum hundum en fyrir suma hefur verið hægt að draga úr einkennum með því að hundurinn hafi gott nag í bílnum t.d. Kong með frosinni fyllingu og fyrir aðra hefur virkað betur að gefa slakandi töflur sem geta einnig dregið úr einkennum bílveiki.

Kælivörur - hægt er að fá kælimottur, skálar og bein sem nýtast vel á heitum dögum og einnig í bílinn.
Bílbelti má fá bæði sem beisli og sem millistykki úr belti yfir í venjulegt beisli hundsins.
Bílstólar eru hentugir fyrir smáhunda þar sem þeir veita þeim betra útsýni en fyrir stærri hundana má fá ábreiður í sætin sem verja áklæðið.
Ferðadýna - þessi bæli eru létt og rúllast upp og henta því afar vel á ferðalagi.
Skálar er gott að grípa með í ferðalagið undir fóður.
Sanal Relax eru slakandi töflur sem geta einnig virkað vel gegn bílveiki.
Vatnsbrúsar og skálar þurfa að koma með í ferðalagið og mjög hentugt er að finna brúsa með skál eða skálar sem hellist síður úr á ferðinni.
Skyndihjálparsett er nauðsynlegt að hafa með í ferðalagið og einnig gott í lengri göngum.
Ferðabúrin frá Nomad eru samþykkt IATA flugbúr og geta hentað vel í hvers kyns ferðalög.
Skottbúr og skottgrindur fást í ýmsum stærðum en þær eru yfirleitt stillanlegar svo hægt er að koma þeim fyrir í flesta bíla.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.