Hiti víðast hvar yfir meðallagi í júní Vésteinn Örn Pétursson skrifar 2. júlí 2020 15:51 Það var blíða á köflum í höfuðborginni í júní. Margir gripu gæsina og nutu útverunnar í góðra vina hópi. Vísir/Vilhelm
Meðalhiti í Reykjavík í júnímánuði var 10,2 stig. Er það 1,2 stigum yfir meðallagi sama mánaðar áranna 1961 til 1990, en 0,1 stigi yfir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhiti júnímánaðar á Akureyri var 11,21 stig, eða 2,0 stigum yfir meðallagi 1961 til 1990, en 1,1 stigi yfir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta kemur fram í yfirliti yfir tíðarfar síðastliðins mánaðar á vef Veðurstofunnar. Þar segir einnig að meðalhiti í Stykkishólmi hafi verið 9,4 stig í síðasta mánuði, og 10 stig á Höfn í Hornafirði. Tafla sem sýnir meðalhita víða um land, og vik frá meðaltali tveggja tímabila.Veðurstofa Íslands/Skjáskot Hæsti hiti mánaðarins mældist á Mörk í Landi þann 28. júní, og var 24,2 stig. Lægsti hitinn var hins vegar -4,6 stig og mældist á Reykjum í Fnjóskadal. Hvað meðalhita varðar var hann hæstur á Torfum í Eyjafirði, 11,1 stig. Lægstur var meðalhitinn á Gagnheiði, 3,5 stig. Lægsti meðalhiti á láglendi var hins vegar 6,4 stig í Seley. Þá mældust sólskinsstundir í Reykjavík 167,4, en það er 6,1 stund yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri voru þær heldur fleiri, eða 222,4. Það er 45,8 stundum fleiri en að meðaltali. Þá var vindur á landsvísu 0,1 metra á sekúndu yfir meðallagi. Úrkoma í Reykjavík mældist 46,9 mm, eða rétt undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri var úrkoman 10 prósent umfram meðaltal sömu ára. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 54,8 mm og 113,2 mm á Höfn í Hornafirði. Hér má nálgast samantekt Veðurstofunnar um tíðarfar í júní.
Veður Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira