Níutíu skiptu með sér 58 milljónum króna til styrkja í menningarmálum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. janúar 2020 16:30 Pálína Jónsdóttir, stjórnandi Reykjavík Ensemble og Ewa Marcinek semstarfskona hennar við afhendingu styrks sem Listhópur Reykjavíkur. Hulda Gunnarsdóttir
Úthlutun styrkja menningar, íþrótta- og tómstundaráðs og útnefning Listhóps Reykjavíkur 2020 fór fram í Iðnó í dag. Hjálmar Sveinson formaður ráðsins gerði grein fyrir úthlutuninni og öðru framlagi borgarinnar til menningarmála. Faghópur skipaður fulltrúum Bandalags íslenskra listamanna og Hönnunarmiðstöðvar Íslands var falið að fara yfir styrkumsóknir og leggja til styrki til menningar og lista. Aldrei hafa borist fleiri umsóknir en í ár. Alls var 251 umsókn til meðferðar þar sem sótt var um tæplega 374 milljónir króna. Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð hafði 58 milljónir króna til úthlutunar til styrkja á sviði menningarmála árið 2020 og veitti vilyrði fyrir 90 styrkjum og 5 nýjum þriggja ára samstarfssamningum fyrir þá upphæð. Fyrir eru ellefu hópar með eldri samninga í gildi. Tveir samstarfssamningar eru endurnýjaðir við menningarhúsið Mengi og myndlistartvíæringinn Sequences en nýir samstarfssamningar eru gerðir við kórinn Schola Cantorum, Óperudaga í Reykjavík og Myndhöggvarafélagið vegna sýningarraðarinnar Hjólsins, áfanga III, IV og V. Þá eru ótaldir 6 nýir Borgarhátíðasamningar við RIFF, Hinsegin daga, Hönnunarmars, Iceland Airwaves, Myrka músíkdaga og Reykjavík Dance Festival fyrir samanlagt 50 milljónir á ári í 3 ár. Einnig má nefna Úrbótasjóðinn, tveggja ára verkefni sem í ár veitti 8 milljónir til 9 tónleikastaða. Ráðið samþykkti tillögu faghóps um að Reykjavík Ensemble alþjóðlegur listhópur undir stjórn Pálínu Jónsdóttur yrði útnefndur Listhópur Reykjavíkur 2020. „Verkefnið er vel ígrunduð áætlun til styrkingar fjölmenningarlegs alþjóðlegs sviðslistarstarfs í Reykjavík,“ segir í tilkynningu frá borginni. Hér er eingöngu verið að segja frá verkefnastyrkjum en aðkoma Reykjavíkurborgar að listum og menningu í borginni er að sjálfsögðu mun víðtækari og kemur við flesta ef ekki alla anga listalífs borgarbúa. Hæstu framlög til menningarlífsins í borginni fyrir utan rekstur menningarstofnana hennar, Borgarbókasafns, Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur, fara til Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Jafnframt njóta Listahátíð í Reykjavík, Sviðslistamiðstöð í Tjarnarbíói, Sjónlistamiðstöð á Korpúlfsstöðum, Bíó Paradís, Hönnunarmiðstöð, Nýlistasafnið, Kling og Bang, Dansverkstæðið, Félagið íslensk grafík, Samband íslenskra myndlistarmanna og fleiri sjálfstæðir aðilar húsnæðis- og/eða rekstrarstyrkja frá Reykjavíkurborg. Reykjavík Ensemble, listhópur Reykjavíkur 2020Hulda Gunnarsdóttir Heildarlisti yfir styrkveitingar menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs 2020: Gerðir verða nýir samstarfssamningar vegna áranna 2020, 2021 og 2022 við eftirtalda aðila með árlegu framlagi með fyrirvara um samþykki borgarráðs og heimildir í fjárhagsáætlun 2021 og 2022: 2,5 m.kr. Sequences myndlistarhátíð 2 m.kr. Myndhöggvarafélagið í Reykjavík – Hjólið, áfangar III, IV og V 2 m.kr. Mengi 1,5 m.kr. Schola Cantorum 1 m.kr. Óperudagar í Reykjavík Listhópur Reykjavíkur 2020: 2 m.kr. Reykjavík Ensemble International Theatre Company Styrkir til verkefna árið 2020: 4,4 m.kr. Stockfish 3 m.kr. Lókal leiklistarhátíð 1,5 m.kr. List án landamæra 1 m.kr. Ramskram ljósmyndagallerí 1 m.kr. Mýrin barnabókmenntahátíð 1 m.kr. Pop-up kvikmyndahátíð 1 m.kr. Hönnunarmiðstöð – DesignTalks Reykjavík // New World New Ways 1 m.kr. RIFF – Reykjavík hin kvika borgagið Frá afhendingunni.Hulda Gunnarsdóttir 800.000 kr. Karl Ágúst Úlfsson – Sperðill 800.000 kr. Rúnar Guðbrandsson – Skáldið í speglinum 750.000 kr. Iceland Noir bókmenntahátíð 750.000 kr. Bíó Paradís – Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík 2020 750.000 kr. Kvikmyndaklasinn - www.svonafolk.is 700.000 kr. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna 700.000 kr. Lúðrasveit Reykjavíkur 700.000 kr. SÍM – Torg listamessa í Reykjavík 2020 700.000 kr. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins 700.000 kr. Lúðrasveitin Svanur 700.000 kr. Mús og Kött ehf. - Húsmæðraskólinn 700.000 kr. Listvinafélag Hallgrímskirkju 700.000 kr. Lúðrasveit verkalýðsins 600.000 kr. Starfsemi IBBY á Íslandi 2020 500.000 kr. Kvennakór Reykjavíkur – Landsmót íslenskra kvennakóra 500.000 kr. Kristín Eva Ólafsdóttir – FÍT 2020 500.000 kr. Leikhúsið 10 fingur – Stúlkan sem lét snjóa 500.000 kr. Snædís Lilja Ingadóttir – Mót 500.000 kr. Leikfélagið Hugleikur – Starfsemi 2020 500.000 kr. Fatahönnunarfélag Íslands – Samsýning - Nýjasta Tízka 500.000 kr. Fatou Ndure Baboudóttir – Norms 500.000 kr. Handverk og hönnun 500.000 kr. Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu 2020 500.000 kr. Textílfélagið – Nýju fötin keisarans! 500.000 kr. Björg Brjánsdóttir –Kvikmyndir með kammersveit 500.000 kr. Örn Alexander Ámundason – Open 500.000 kr. Leikhópurinn Perlan –Draumasýningin okkar 500.000 kr. Kvennakórinn Vox Feminae 400.000 kr. Elfa Lilja Gísladóttir – Upptakturinn 2020 400.000 kr. Ljósmyndahátíð Íslands 2020 400.000 kr. Kári Þormar – Síðdegistónlist í Dómkirkjunni og h-moll messa Bachs 400.000 kr. Kammermúsíkklúbburinn 400.000 kr. Söngfjelagið – Samstarf um söng í borg 400.000 kr. Guðný Guðmundsdóttir – Hádegistónar 400.000 kr. Katrín Gunnarsdóttir – Milli skinns og hörunds 400.000 kr. Pamela De S. Kristbjargardóttir – Börnin tækla tónskáldin 2020 400.000 kr. FAR Fest Afríka Reykjavík 2020 400.000 kr. Kammertónleikar Camerarctica 2020 400.000 kr. 15:15 tónleikasyrpan 400.000 kr. Jón Gabríel Lorange – Listvitinn 400.000 kr. Sigríður Regína Sigurþórsdóttir – Alþjóðlegi heimamyndadagurinn 2020 400.000 kr. Kaffibarinn í 25 ár 400.000 kr. Ásthildur Kjartansdóttir – Ekki einleikið/Acting out 400.000 kr. Ástbjörg Rut Jónsdóttir – Eyja 350.000 kr. Magnea Björk Valdimarsdóttir – Helgi á Prikinu 350.000 kr. Birnir Jón Sigurðsson – Strokuselurinn, sviðslistatilraunastofa 350.000 kr. Ásmundarsalur – Reykjavík Art Book Fair 300.000 kr. Guðni Björn Valberg – Annar Laugavegur 300.000 kr. Hulda Rós Guðnadóttir – Undirbúningur og samfélagsleg þátttaka fyrir staðbundna myndlistarsýningu 300.000 kr. Les Fréres Stefson ehf. – Snælda 300.000 kr. Söngsveitin Fílharmónía – Afmælistónleikar: Requiem eftir Verdi 300.000 kr. Steinunn Knútsdóttir – No Show - Ekki hér 300.000 kr. Hallveig Kristín Eiríksdóttir – Hundurinn á bak við manninn 300.000 kr. Raflistafélag Íslands – Raflost 2020 300.000 kr. Aldís Gyða Davíðsdóttir – Hjartastopp 300.000 kr. Magnea Einarsdóttir – Magnea AW20 tískusýning 300.000 kr. Bryndís Ósk Þ Ingvarsdóttir – Hvíta tígrisdýrið: Ævintýri um andlegt ofbeldi 300.000 kr. Kristín Mjöll Jakobsdóttir – Norrænt í alþjóðlegu samhengi 300.000 kr. Sigurjón Halldórsson – Samstarf við Sofia Boys Choir í Búlgaríu 300.000 kr. Saga Sigurðardóttir – Eyður 300.000 kr. Kristín Guðmundsdóttir – Kyrjandi kvenorka 300.000 kr. Gígja Jónsdóttir – Geigen Schein 300.000 kr. Hildur Björk Yeoman – Hildur Yeoman á Hönnunarmars 300.000 kr. Þorvaldur Sigurbjörn Helgason – 20/20 300.000 kr. Galdur Productions – Verk nr. 2 300.000 kr. Pan Thorarensen – Extreme Chill Festival 2020 300.000 kr. Arkitektafélag Íslands – Ábyrgð arkitekta í hamfarahlýnun jarðar 300.000 kr. Margrét Jóhanna Pálmadóttir – Stúlknakór Reykjavíkur 25 ára 250.000 kr. IceCon – Furðusagnahátíð IceCon 2020 200.000 kr. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir – Hátíð Hverfulleikans 200.000 kr. Lilja Dögg Gunnarsdóttir – Starfsemi Umbru 2020 200.000 kr. Andrea Elín Vilhjálmsdóttir – Föt - frá öðrum tíma 200.000 kr. Óðinn Ásbjarnarson – Ungleikur 2020 200.000 kr. Ýr Jóhannsdóttir – Peysa á pulsu í peysu 200.000 kr. Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir – Hlökk og vinir á Myrkum músíkdögum 200.000 kr. Gerður Sif Ingvarsdóttir – Reykjavík Deathfest 2020 200.000 kr. Kristín Valsdóttir – Tákn / Trophies - Kórverk 200.000 kr. Guðlaug María Bjarnadóttir – Tjarnarleikhópur 100.000 kr. Jónas Hauksson – Doomcember 100.000 kr. Margrét A. Björgvinsdóttir – Kórsöngur 50.000 kr. Fanný S Cloé Goupil Thiercelin – Íslenska myndasögusamfélagið
Bíó og sjónvarp Leikhús Tíska og hönnun Mest lesið Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Lífið „Þú varst að tala um Klausturmálið!“ Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Bíó og sjónvarp Stúlkan með nálina: Hver gerir svona kvikmynd? Gagnrýni Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Tónlist Heitustu tískuskvísur landsins fögnuðu Tíska og hönnun Hrund Gunnsteins kaupir íbúð Viktors Bjarka og Álfrúnar Lífið Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Lífið Fleiri fréttir Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Sjá meira