Segja Assange sæta illri meðferð í fangelsi Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2020 13:04 Lögmenn Assange og Wikileaks á leið í réttarsal í morgun. Vísir/EPA
Lögmenn Julians Assange, stofnanda Wikileaks, fullyrða að hafi ítrekað verið handjárnaður og afklæddur eftir fyrsta dag réttarhalda um hvort framselja eigi hann til Bandaríkjanna í gær. Fangaverðir hafi jafnframt tekið af honum málsskjöl sem lögmennirnir segja að skerði getu Assange til þess að taka þátt í réttarhöldunum. Réttarhöldin í framsalsmáli Assange hófust í London í gær. Bandaríkjastjórn krefst þess að hann verði framseldur til að hann svari til saka fyrir ákæru um samsæri um tölvuinnbrot og njósnir sem tengjast uppljóstrunum Wikileaks upp úr bandarískum leyniskjölum árið 2010. Dómarinn í málinu sagði lögmönnum Assange að hún hefði ekki vald til þess að taka afstöðu til eða úrskurða um aðstæður Assange í fangelsi en hvatti þá til þess að taka málið upp við fangelsismálayfirvöld, að sögn The Guardian. Sagðist hún ætlast til þess að komið væri fram við Assange þannig að réttur hans til sanngjarnra réttarhalda væri virtur. Bandaríkjastjórn heldur því fram að Assange hafi stefnt lífi fjölda fólks í hættu þegar hann birti skjöl frá Bandaríkjaher og utanríkisþjónustunni án þess að má út nöfn einstaklinga sem hefðu aðstoðað Bandaríkin, þar á meðal í Írak og Afganistan.
Bandaríkin Bretland WikiLeaks Mál Julians Assange Tengdar fréttir Trump sagður hafa boðið Assange náðun gegn vitnisburði Lögmaður stofnanda Wikileaks vísaði til vísbendinga um að honum hefði verið boðin náðun þegar mál um mögulegt framsal hans var tekið fyrir í breskum dómstól. 19. febrúar 2020 19:36 Assange sakaður um að hafa sett líf fólks í hættu Tekist er á um hvort framselja beri stofnanda Wikileaks til Bandaríkjanna fyrir dómi í Bretlandi í morgun. 24. febrúar 2020 13:42 Mest lesið Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Erlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Erlent Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Innlent Fleiri fréttir Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Sjá meira
Trump sagður hafa boðið Assange náðun gegn vitnisburði Lögmaður stofnanda Wikileaks vísaði til vísbendinga um að honum hefði verið boðin náðun þegar mál um mögulegt framsal hans var tekið fyrir í breskum dómstól. 19. febrúar 2020 19:36
Assange sakaður um að hafa sett líf fólks í hættu Tekist er á um hvort framselja beri stofnanda Wikileaks til Bandaríkjanna fyrir dómi í Bretlandi í morgun. 24. febrúar 2020 13:42