Líklegt að Valskonur fái spænskt lið en meiri óvissa hjá Mosfellingum Sindri Sverrisson skrifar 27. ágúst 2020 17:00 Valskonur urðu Íslandsmeistarar 2019 en ekki voru krýndir Íslandsmeistarar í vor vegna kórónuveirufaraldursins. VÍSIR/BÁRA
Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals í handbolta kvenna mæta liði frá Spáni eða Sviss í 2. umferð Evrópubikarsins. Lið frá fjórum löndum koma til greina sem mótherjar karlaliðs Aftureldingar. Vegna kórónuveirufaraldursins ríkir reyndar vissulega óvissa um hvort að af leikjum í keppnunum verði, en í fyrradag tilkynntu Valsmenn til að mynda að þeir hefðu dregið karlalið sitt úr keppni í Evrópudeildinni. Sáu þeir sér ekki annað fært vegna ferðatakmarkana og sóttvarnaákvæða. Kvennalið Vals á samkvæmt áætlun að spila í Evrópubikarnum 10. eða 11. október, og aftur viku síðar. Dregið verður næsta þriðjudag um það hvaða lið verður mótherji Vals, en vegna faraldursins hefur liðum verið raðað í flokka fyrir dráttinn, eftir svæðum í Evrópu. Þrjú spænsk lið og eitt svissneskt lið koma til greina sem andstæðingar Vals. Spænsku liðin eru Rocasa Gran Canaria, Rincon Fertilidad Malaga og Granollers. Svissneska liðið er Rotweiss Thun. Afturelding á að spila í nóvember og FH í desember Karlalið Aftureldingar fær einnig að vita það á þriðjudag hver mótherji liðsins verður, í 2. umferð Evrópubikarsins. Leikjum þar hefur verið frestað til 14./15. og 21./22. nóvember. FH mætir til leiks í 3. umferð sem fram fer í desember. Afturelding gæti dregist gegn Cocks eða Helsinki frá Finnlandi, Sviesa Vilnius eða Granitas-Karys frá Litháen, Tallinn frá Eistlandi eða Kolstad frá Noregi.
Olís-deild karla Olís-deild kvenna Handbolti Valur Afturelding Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira