Berfætt í slæmu ástandi á Ísafirði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. september 2020 13:31 Matvörupoka var stolið af viðskiptavini í Bónus í vikunni. Vísir/Vilhelm
Stúlka í slæmu ástandi, berfætt og í náttfötum, svaf öryggis síns vegna af sér í fangaklefa á Ísafirði í síðustu viku. Í skýrslu lögreglunnar á Vestfjörðum kemur fram að lögreglu hafi ekki tekist að komast að áformum hennar eða dvalarstað. Var hún því látin sofa úr sér vímuna. Var henni ekið til síns heima daginn eftir, þegar hún gat upplýst um þann stað. Var þetta þriðjudaginn 1. september. Þetta var á meðal verkefna lögreglunnar í síðustu viku sem kom einnig að hópslagsmálum á Bíldudal og þjófnaði á fullum matvörupoka í Bónus á Ísafirði. Þá hefur karlmaður látið ófriðlega við nágranna sinn í bænum undanfarið. Miðvikudaginn 2. september hafði lögregla afskipti af manninum sem birtist á svölum nágranna síns á Ísafirði miðvikudaginn í síðustu viku. Kvaðst maðurinn vera læstur úti og þyrfti að komast heim til sín en hann reyndist vera í annarlegu ástandi að sögn lögreglu. Þá veittist maðurinn að gestkomandi á sama heimili þegar hann var beðinn um að fara aftur í sína íbúð. Maðurinn hlýddi svo ekki fyrirmælum lögreglu og hrækti í átt að lögreglumanni. Var hann vistaður í fangaklefa um nóttina. Þurfti lögregla að hafa aftur afskipti af honum síðar í vikunni vegna áreitis við nágranna sína. Á fimmtudag var björgunarsveit kölluð út vegna þakjárns sem var að fljúga af þaki á Suðureyri sökum veðurs. Einnig var tilkynnt um fjúkandi trampólín á Ísafirði. Eigandi þess náði þó að koma og taka það niður áður en tjón hlaust af. Lögregla hvetur eigendur lausamuna að tryggja að þeir fjúki ekki. Slagsmál brutust út milli nokkurra aðila á Bíldudal á föstudag. Einhverjir hlutu áverka og var því kallað eftir sjúkrabíl til að hlúa að þeim. Eftir átökin dró einn aðilinn upp hníf og var hann handtekinn í kjölfarið og vistaður í fangaklefa til næsta morguns. Atvikið er til rannsóknar hjá lögreglunni. Á laugardag slasaðist ung stúlka á höfði eftir að hafa ekið fjórhjóli fram af árbakka. Var hún flutt á slysadeild í Fossvogi vegna áverka sinna, en reyndist vera óbrotin. Maður sem var með henni á fjórhjóli hlaut mar og skrámur en heill að öðru leyti. Sama dag var matvörupoka stolið úr anddyrinu verslunar Bónuss á Ísafirði meðan eigandi hans brá sér frá í stundarkorn, inn í aðra verslun. Málið er í rannsókn og þiggur lögreglan upplýsingar um gerandann, ef einhver býr að þeim. Þá voru unnin skemmdarverk á kyrrstæðri bifreið á Ísafirði. Búið var að sparka í hægri afturhurð bifreiðarinnar þegar eigandi hennar kom að henni á bifreiðastæði við íþróttahúsið á Torfnesi. Stór beygla var sjáanleg á bifreiðinni og skófar í beyglunni. Ekki er vitað hver var að verki en hafi einhver upplýsingar um verknaðinn er viðkomandi beðinn um að hafa samband við lögreglu. Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var stöðvaður við akstur á Djúpvegi við Þröskulda á 124 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hraði er 90 km. Fimm ökumannanna voru stöðvaðir við akstur á Djúpvegi en einn við Vestfjarðagöng. Einn ökumaðurinn virtist vera í annarlegu ástandi er hann var stöðvaður og reyndist vera undir áhrifum vímuefna. „Talsvert er um að ekið sé á búfé sem eru oft á beit við vegi umdæmisins. Eru ökumenn beðnir um að hafa þessa hættu í huga þegar ekið er um þjóðvegina,“ segir í tilkynningu lögreglu. Þá er til rannsóknar innbrot í aðstöðu dýralæknis á Ísafirði, aðfaranótt síðastliðins mánudags. Þiggur lögreglan allar upplýsingar sem almenningur getur veitt.
Ísafjarðarbær Lögreglumál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira