Lífið

Hin suður-afríska Whitney Houston sló í gegn í Britain's Got Talent

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
„Ég dýrka þig!“ Voru orð Simons eftir flutning Belindu á laginu One Moment In Time. 
„Ég dýrka þig!“ Voru orð Simons eftir flutning Belindu á laginu One Moment In Time.  Skjáskot

Hin suður-afríska Belinda Davis steig á svið í þættinum Britain's Got Talent nú á dögunum og heillaði dómara þáttarins upp úr skónum.

Belinda er 43 ára en hún sérhæfir sig í að syngja lög söngdívunnar heitnu, Whitney Houston. Simon Cowell lýsti ákafri hrifningu sinni af Whitney Houston áður en Belinda byrjar sönginn, þannig að kröfurnar voru ekki litlar. 

Belinda tileinkaði sonum sínum tveimur sönginn þetta kvöld en hún valdi að syngja lag Whitney, One Moment in Time. Eftir flutninginn endar Simon á því að segja „Ég dýrka þig!“ við Belindu enda hreint magnaður flutningur.

 Sjáið sönginn í klippunni hér að neðan.

Klippa: Britain's got talent - Syngur lag eftir Whitney Houston og slær í gegn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.