Bíó og sjónvarp

Enn sópar Hildur að sér verð­launum fyrir Joker

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hildur Guðnadóttir vann til Óskarsverðlauna fyrir tónlistina í Joker í febrúar á þessu ári.
Hildur Guðnadóttir vann til Óskarsverðlauna fyrir tónlistina í Joker í febrúar á þessu ári.

Hildur Guðnadóttir, tónskáld og Óskarsverðlaunahafi, vann í gær til enn einna verðlaunanna fyrir tónlist sína fyrir kvikmyndina Joker. Í gær vann hún til verðlauna sem besta kvikmyndatónskáldið á World Soundtrack Awards, sem eru á vegum kvikmyndahátíðarinnar í Gent í Belgíu.

Í þakkarræðu sem birt eru á Facebook-síðu verðlaunanna segir Hildur það mikinn heiður að vera veitt verðlaunin og að hún vildi óska þess að hún gæti verið í Gent til þess að taka við verðlaununum. Sökum kórónuveirunnar væri það hins vegar ekki möguleiki.

„Ég held að þetta ár hafi haft eitthvað annað í huga fyrir okkur og við verðum bara að gera það besta úr aðstæðunum.“

Hildur þakkaði þá Todd Phillips, leikstjóra Joker, og Joaquin Phoenix, aðalleikara myndarinnar, fyrir listrænt framlag sitt og vináttu.

„Ég vil líka þakka fólkinu á bak við mínar senur. Fólkinu sem hélt öllu saman, hélt geðheilsu minni í lagi og fólkinu sem ég gæti ekki starfað án,“ sagði Hildur og þakkaði umboðsmanni sínum, fjölmiðlafulltrúum, aðstoðarmanni sínum, móður, stjúpföður, syni sínum og „síðast en ekki síst“ eiginmanni sínum.

„Ég sendi öllum þarna úti ástarkveðjur og vona að þið séuð nærri ástvinum ykkar, hvort sem það er í persónu eða rafrænt og ég vona að þið séuð örugg. Takk aftur fyrir, takk.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.