Alldjúp lægð fer yfir og gular viðvaranir um mest allt land Atli Ísleifsson skrifar 5. nóvember 2020 07:10 Svona verður staðan klukkan 18 í dag samkvæmt spá Veðurstofunnar. Veðurstofan
Alldjúp lægð fer norðaustur fyrir vestan land í dag og fylgir henni vaxandi suðvestanátt, víða hvassviðri eða stormur eftir hádegi og sums staðar rok. Búast má við rigningu sunnan- og vestantil og hlýtt í veðri, en að draga muni aðeins úr vindi og kólni seint í kvöld. Búið er að gefa út gular viðvaranir um mest allt landið – fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi og Austfirði.Taka þær gildi um miðjan dag í dag og gilda fram á kvöld eða í nótt. „Á morgun minnir veturinn á sig, það er spáð suðvestan 10-18 m/s með éljum sunnan- og vestanlands. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag er útlit fyrir sunnan kalda eða stinningskalda með rigningu eða slyddu, en skýjuðu og þurru veðri á norðaustanverðu landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út um mest allt land.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðvestan 10-18 m/s og él, en léttskýjað á NA- og A-landi. Hiti 0 til 5 stig. Lægir heldur síðdegis. Á laugardag: Suðvestan 8-13 og rigning eða slydda, en þurrt NA- og A-lands. Hiti 1 til 7 stig. Á sunnudag: Suðlæg átt og bjart veður, en skýjað og lítilsháttar væta á S- og V-landi. Hiti 2 til 7 stig, en kringum frostmark NA-til á landinu. Á mánudag og þriðjudag: Suðaustanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið N-lands. Fremur milt í veðri. Á miðvikudag: Líklega suðlæg átt með rigningu eða slyddu.
Veður Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fleiri fréttir Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Þykknar upp og snjóar Sjá meira