2 dagar í Ungverjaleik: Eina mark Guðna í 80 landsleikjum kom gegn Ungverjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2020 12:30 Guðni Bergsson er formaður KSÍ í dag en hann var fyrirliði íslenska landsliðsins þegar hann skoraði á móti Ungverjum fyrir rúmum 25 árum síðan. Samsett/Vilhem/Youtube Guðni Bergsson, formaður KSÍ lék á sínum tíma áttatíu A-landsleiki á nítján árum þar af þrjátíu þeirra sem fyrirliði. Hann var bara einu sinni á skotskónum í þessum leikjum og það var á móti Ungverjum á Laugardalsvellinum árið 1995. Í dag eru tveir dagar í úrslitastund hjá strákunum okkar í karlalandsliðinu í fótbolta en 12. nóvember næstkomandi kemur í ljós á Ferenc Puskás leikvanginum í Búdapest hvort það verður Ungverjaland eða Ísland sem spilar í lokakeppni Evrópumótsins í sumar. Leikur verður í beinni á Stöð 2 Sport og spennan magnast með hverjum deginum. Vísir heldur áfram að telja niður í leikinn. Guðni Bergsson skoraði sitt eina landsliðsmark á móti Ungverjum í sínum 62. landsleik sem fór fram á Laugardalsvellinum 11. júní 1995. Guðni var þarna á sínu þriðja ári sem fyrirliði liðsins en hann hafði þarna spilað meira en sextíu landsleiki án þess að skora. Mynd af langþráðu marki Guðna Bergssonar var á forsíðu DV 12. júní 1995.Skjámynd/Timarit.is/DV Guðni spilaði auðvitað í vörninni og var því ekki oft með í sókninni. Í þessum leik á móti Ungverjum fyrir meira en aldarfjórðungi síðan þá fór hann hins vegar fram í einu horna íslenska liðsins. Hornspyrna Rúnars Kristinssonar fór á kollinn á Ólafi Adolfssyni sem skallaði en varnarmenn Ungverja komust fyrir boltann. Hann barst aftur á móti til Guðna sem sendi hann í boga í slána og niður. Guðni var líka fljótur á fætur og skallaði hann til öryggis yfir marklínuna en boltinn var þó líklega farinn inn áður en kom að því. „Ég hélt að boltinn væri inni þegar ég skallaði en það var gaman að Guðna skyldi loks takast að skora. Það var gott að vinna þetta, sérstaklega þar sem við lentum undir. Mér fannst þetta fyllilega sanngjarn sigur," sagði Ólafur Adolfsson við DV eftir leikinn. Guðni fagnaði markinu vel sem jafnaði metin í 1-1 á 61. mínútu eftir að Ungverjar höfðu verið yfir í leiknum í fjörutíu mínútur. Sigurður Jónsson skoraði síðan sigurmark íslenska liðsins aðeins sex mínútum síðar. Mark Guðna átti næstum því alla opnu Morgunblaðsins eftir leikinn.Skjámynd/Timarit.is/Morgunblaðið „Nú er öllum skotum frá félögunum lokið hér með. Það var erfitt að ná þessum bolta inn en það tókst. Ég fann á mér að ég myndi skora í þessum leik eins og Þorgrímur Þráinsson vinur minn spáði svo réttilega í DV. Við vorum aðeins slegnir eftir að Ungverjarnir skoruðu en við vorum betri aðilinn allan leikinn og eftir að við skoruðum var þetta aldrei spurning," sagði Guðni Bergsson í viðtali við DV eftir leikinn. Guðni skoraði reyndar ekki aftur fyrir íslenska landsliðið þótt að hann kæmist nálægt því á móti Ungverjum í Búdapest nákvæmlega fimm mánuðum síðar. Guðni átti þá skalla í stöng í stöðunni 0-1 fyrir Ungverjaland. Ungverjar lönduðu aftur á móti sigrinum og enduðu þar með þriggja leikja taphrinu á móti Íslandi. Leikur Ungverjalands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19.45 en upphitun hefst klukkan 18.45. Áskrift er hægt að kaupa hér en einnig verður í boði að kaupa stakan viðburð á myndlyklum Vodafone og Símans á kr. 990, sem og í vefsjónvarpi Stöðvar 2. EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir 3 dagar í Ungverjaleik: Höddi Magg tryggði okkur síðast sigur í Búdapest Bernskudraumurinn rættist hjá Herði Magnússyni fyrir rúmum 28 árum síðan en íslenska þjóðin lætur sig nú dreyma um að íslensku strákarnir fái tækifæri til að fagna aftur í Búdapest á fimmtudagskvöldið. 9. nóvember 2020 12:30 4 dagar í Ungverjaleik: Nístingssár niðurstaða síðast þegar liðin mættust Íslendingar gengu afar niðurlútir af Velodrome-leikvanginum í Marseille síðast þegar þeir mættu Ungverjum. Liðin mætast í úrslitaleik um að komast aftur á EM, í Búdapest á fimmtudaginn. 8. nóvember 2020 10:01 5 dagar í Ungverjaleik: Gulldrengurinn frá Székesfehérvár með þrumuskotin Dominik Szoboszlai er framtíðarstjarna ungverska landsliðsins sem mætir því íslenska í umspili um sæti á EM 12. nóvember. 7. nóvember 2020 10:00 6 dagar í Ungverjaleik: Ungverjar eiga eitt vandræðalegasta umspil allra tíma Það tók ungverska landsliðið og ungverska knattspyrnu mjög langan tíma að jafna sig á útreiðinni sem liðið fékk í umspili fyrir HM 1998. 6. nóvember 2020 12:30 7 dagar í Ungverjaleik: Yfirgnæfðu „bláa hafið“ og mega fylla þriðja hvert sæti Þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn má búast við því að 20 þúsund stuðningsmenn verði á Puskás Aréna eftir viku, þegar Ungverjaland og Ísland mætast í úrslitaleik um sæti á EM karla í fótbolta. 5. nóvember 2020 12:30 8 dagar í Ungverjaleik: Þjálfaraferill hins eina sanna Puskás endaði á Íslandi Landsliðsþjálfaraferill ungversku fótboltagoðsagnarinnar Ferenc Puskás var á enda eftir tapleik í Laugardalnum í júnímánuði fyrir rúmum 27 árum síðan. 4. nóvember 2020 12:31 9 dagar í Ungverjaleik: Yrði jafnsögulegt fyrir Ungverja og fyrir Íslendinga Ungverjar og Íslendingar spila hreinan úrslitaleik um sæti á EM og um leið geta knattspyrnulið beggja þjóða náð sögulegum árangri í knattspyrnusögu sinnar þjóðar. 3. nóvember 2020 12:31 10 dagar í Ungverjaleik: Höfum aldrei unnið Ungverja án Guðna formanns Það er kannski spurning um að klæða formann KSÍ aftur í íslenska landsliðsbúninginn þegar Ísland mætir Ungverjum í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu næsta sumar. 2. nóvember 2020 12:31 Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Handbolti Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Sport Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Íslenski boltinn Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar kaupa Hrannar Snæ frá Noregi Gunnar Orri Olsen um frumraun sína með FCK: „Þetta er stórt!“ Valur - Víkingur | Botnliðin berjast Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Þór/KA - Fram | Sækir Fram fimmta sigurinn í röð? Grindavík/Njarðvík - ÍBV | Situr þreytan enn í Suðurnesjaliðinu? Deilur Spánar og Marokkó setja undirbúning Barcelona úr skorðum Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Yngsti landsliðsmaður í sögu Argentínu orðinn liðsfélagi Alberts Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Lukaku leitar sér að nýju liði Mexíkó og Argentína styðja Infantino Bjarki söðlar um á Ítalíu og syngur lagið hans Orra Gísli Gotti til Þýskalands Agla María skaut Breiðablik í forkeppni Evrópubikarsins Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Ætlar að vinna ítölsku úrvalsdeildina Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Ráðherrann segir að Spánn eigi meira skilið en Marokkó að fá úrslitaleik HM Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Írönsku fótboltakonurnar fengu ástralskan ríkisborgararétt Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Misjafnt gengi hjá Íslendingaliðunum í Evrópu í kvöld Afríska knattspyrnusambandið styður Infantino einróma Sjá meira
Guðni Bergsson, formaður KSÍ lék á sínum tíma áttatíu A-landsleiki á nítján árum þar af þrjátíu þeirra sem fyrirliði. Hann var bara einu sinni á skotskónum í þessum leikjum og það var á móti Ungverjum á Laugardalsvellinum árið 1995. Í dag eru tveir dagar í úrslitastund hjá strákunum okkar í karlalandsliðinu í fótbolta en 12. nóvember næstkomandi kemur í ljós á Ferenc Puskás leikvanginum í Búdapest hvort það verður Ungverjaland eða Ísland sem spilar í lokakeppni Evrópumótsins í sumar. Leikur verður í beinni á Stöð 2 Sport og spennan magnast með hverjum deginum. Vísir heldur áfram að telja niður í leikinn. Guðni Bergsson skoraði sitt eina landsliðsmark á móti Ungverjum í sínum 62. landsleik sem fór fram á Laugardalsvellinum 11. júní 1995. Guðni var þarna á sínu þriðja ári sem fyrirliði liðsins en hann hafði þarna spilað meira en sextíu landsleiki án þess að skora. Mynd af langþráðu marki Guðna Bergssonar var á forsíðu DV 12. júní 1995.Skjámynd/Timarit.is/DV Guðni spilaði auðvitað í vörninni og var því ekki oft með í sókninni. Í þessum leik á móti Ungverjum fyrir meira en aldarfjórðungi síðan þá fór hann hins vegar fram í einu horna íslenska liðsins. Hornspyrna Rúnars Kristinssonar fór á kollinn á Ólafi Adolfssyni sem skallaði en varnarmenn Ungverja komust fyrir boltann. Hann barst aftur á móti til Guðna sem sendi hann í boga í slána og niður. Guðni var líka fljótur á fætur og skallaði hann til öryggis yfir marklínuna en boltinn var þó líklega farinn inn áður en kom að því. „Ég hélt að boltinn væri inni þegar ég skallaði en það var gaman að Guðna skyldi loks takast að skora. Það var gott að vinna þetta, sérstaklega þar sem við lentum undir. Mér fannst þetta fyllilega sanngjarn sigur," sagði Ólafur Adolfsson við DV eftir leikinn. Guðni fagnaði markinu vel sem jafnaði metin í 1-1 á 61. mínútu eftir að Ungverjar höfðu verið yfir í leiknum í fjörutíu mínútur. Sigurður Jónsson skoraði síðan sigurmark íslenska liðsins aðeins sex mínútum síðar. Mark Guðna átti næstum því alla opnu Morgunblaðsins eftir leikinn.Skjámynd/Timarit.is/Morgunblaðið „Nú er öllum skotum frá félögunum lokið hér með. Það var erfitt að ná þessum bolta inn en það tókst. Ég fann á mér að ég myndi skora í þessum leik eins og Þorgrímur Þráinsson vinur minn spáði svo réttilega í DV. Við vorum aðeins slegnir eftir að Ungverjarnir skoruðu en við vorum betri aðilinn allan leikinn og eftir að við skoruðum var þetta aldrei spurning," sagði Guðni Bergsson í viðtali við DV eftir leikinn. Guðni skoraði reyndar ekki aftur fyrir íslenska landsliðið þótt að hann kæmist nálægt því á móti Ungverjum í Búdapest nákvæmlega fimm mánuðum síðar. Guðni átti þá skalla í stöng í stöðunni 0-1 fyrir Ungverjaland. Ungverjar lönduðu aftur á móti sigrinum og enduðu þar með þriggja leikja taphrinu á móti Íslandi. Leikur Ungverjalands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19.45 en upphitun hefst klukkan 18.45. Áskrift er hægt að kaupa hér en einnig verður í boði að kaupa stakan viðburð á myndlyklum Vodafone og Símans á kr. 990, sem og í vefsjónvarpi Stöðvar 2.
Leikur Ungverjalands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19.45 en upphitun hefst klukkan 18.45. Áskrift er hægt að kaupa hér en einnig verður í boði að kaupa stakan viðburð á myndlyklum Vodafone og Símans á kr. 990, sem og í vefsjónvarpi Stöðvar 2.
EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir 3 dagar í Ungverjaleik: Höddi Magg tryggði okkur síðast sigur í Búdapest Bernskudraumurinn rættist hjá Herði Magnússyni fyrir rúmum 28 árum síðan en íslenska þjóðin lætur sig nú dreyma um að íslensku strákarnir fái tækifæri til að fagna aftur í Búdapest á fimmtudagskvöldið. 9. nóvember 2020 12:30 4 dagar í Ungverjaleik: Nístingssár niðurstaða síðast þegar liðin mættust Íslendingar gengu afar niðurlútir af Velodrome-leikvanginum í Marseille síðast þegar þeir mættu Ungverjum. Liðin mætast í úrslitaleik um að komast aftur á EM, í Búdapest á fimmtudaginn. 8. nóvember 2020 10:01 5 dagar í Ungverjaleik: Gulldrengurinn frá Székesfehérvár með þrumuskotin Dominik Szoboszlai er framtíðarstjarna ungverska landsliðsins sem mætir því íslenska í umspili um sæti á EM 12. nóvember. 7. nóvember 2020 10:00 6 dagar í Ungverjaleik: Ungverjar eiga eitt vandræðalegasta umspil allra tíma Það tók ungverska landsliðið og ungverska knattspyrnu mjög langan tíma að jafna sig á útreiðinni sem liðið fékk í umspili fyrir HM 1998. 6. nóvember 2020 12:30 7 dagar í Ungverjaleik: Yfirgnæfðu „bláa hafið“ og mega fylla þriðja hvert sæti Þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn má búast við því að 20 þúsund stuðningsmenn verði á Puskás Aréna eftir viku, þegar Ungverjaland og Ísland mætast í úrslitaleik um sæti á EM karla í fótbolta. 5. nóvember 2020 12:30 8 dagar í Ungverjaleik: Þjálfaraferill hins eina sanna Puskás endaði á Íslandi Landsliðsþjálfaraferill ungversku fótboltagoðsagnarinnar Ferenc Puskás var á enda eftir tapleik í Laugardalnum í júnímánuði fyrir rúmum 27 árum síðan. 4. nóvember 2020 12:31 9 dagar í Ungverjaleik: Yrði jafnsögulegt fyrir Ungverja og fyrir Íslendinga Ungverjar og Íslendingar spila hreinan úrslitaleik um sæti á EM og um leið geta knattspyrnulið beggja þjóða náð sögulegum árangri í knattspyrnusögu sinnar þjóðar. 3. nóvember 2020 12:31 10 dagar í Ungverjaleik: Höfum aldrei unnið Ungverja án Guðna formanns Það er kannski spurning um að klæða formann KSÍ aftur í íslenska landsliðsbúninginn þegar Ísland mætir Ungverjum í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu næsta sumar. 2. nóvember 2020 12:31 Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Handbolti Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Sport Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Íslenski boltinn Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar kaupa Hrannar Snæ frá Noregi Gunnar Orri Olsen um frumraun sína með FCK: „Þetta er stórt!“ Valur - Víkingur | Botnliðin berjast Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Þór/KA - Fram | Sækir Fram fimmta sigurinn í röð? Grindavík/Njarðvík - ÍBV | Situr þreytan enn í Suðurnesjaliðinu? Deilur Spánar og Marokkó setja undirbúning Barcelona úr skorðum Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Yngsti landsliðsmaður í sögu Argentínu orðinn liðsfélagi Alberts Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Lukaku leitar sér að nýju liði Mexíkó og Argentína styðja Infantino Bjarki söðlar um á Ítalíu og syngur lagið hans Orra Gísli Gotti til Þýskalands Agla María skaut Breiðablik í forkeppni Evrópubikarsins Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Ætlar að vinna ítölsku úrvalsdeildina Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Ráðherrann segir að Spánn eigi meira skilið en Marokkó að fá úrslitaleik HM Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Írönsku fótboltakonurnar fengu ástralskan ríkisborgararétt Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Misjafnt gengi hjá Íslendingaliðunum í Evrópu í kvöld Afríska knattspyrnusambandið styður Infantino einróma Sjá meira
3 dagar í Ungverjaleik: Höddi Magg tryggði okkur síðast sigur í Búdapest Bernskudraumurinn rættist hjá Herði Magnússyni fyrir rúmum 28 árum síðan en íslenska þjóðin lætur sig nú dreyma um að íslensku strákarnir fái tækifæri til að fagna aftur í Búdapest á fimmtudagskvöldið. 9. nóvember 2020 12:30
4 dagar í Ungverjaleik: Nístingssár niðurstaða síðast þegar liðin mættust Íslendingar gengu afar niðurlútir af Velodrome-leikvanginum í Marseille síðast þegar þeir mættu Ungverjum. Liðin mætast í úrslitaleik um að komast aftur á EM, í Búdapest á fimmtudaginn. 8. nóvember 2020 10:01
5 dagar í Ungverjaleik: Gulldrengurinn frá Székesfehérvár með þrumuskotin Dominik Szoboszlai er framtíðarstjarna ungverska landsliðsins sem mætir því íslenska í umspili um sæti á EM 12. nóvember. 7. nóvember 2020 10:00
6 dagar í Ungverjaleik: Ungverjar eiga eitt vandræðalegasta umspil allra tíma Það tók ungverska landsliðið og ungverska knattspyrnu mjög langan tíma að jafna sig á útreiðinni sem liðið fékk í umspili fyrir HM 1998. 6. nóvember 2020 12:30
7 dagar í Ungverjaleik: Yfirgnæfðu „bláa hafið“ og mega fylla þriðja hvert sæti Þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn má búast við því að 20 þúsund stuðningsmenn verði á Puskás Aréna eftir viku, þegar Ungverjaland og Ísland mætast í úrslitaleik um sæti á EM karla í fótbolta. 5. nóvember 2020 12:30
8 dagar í Ungverjaleik: Þjálfaraferill hins eina sanna Puskás endaði á Íslandi Landsliðsþjálfaraferill ungversku fótboltagoðsagnarinnar Ferenc Puskás var á enda eftir tapleik í Laugardalnum í júnímánuði fyrir rúmum 27 árum síðan. 4. nóvember 2020 12:31
9 dagar í Ungverjaleik: Yrði jafnsögulegt fyrir Ungverja og fyrir Íslendinga Ungverjar og Íslendingar spila hreinan úrslitaleik um sæti á EM og um leið geta knattspyrnulið beggja þjóða náð sögulegum árangri í knattspyrnusögu sinnar þjóðar. 3. nóvember 2020 12:31
10 dagar í Ungverjaleik: Höfum aldrei unnið Ungverja án Guðna formanns Það er kannski spurning um að klæða formann KSÍ aftur í íslenska landsliðsbúninginn þegar Ísland mætir Ungverjum í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu næsta sumar. 2. nóvember 2020 12:31