Gul stormviðvörun á Suðurlandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. nóvember 2020 07:12 Vindaspá Veðurstofunnar klukkan 15 í dag. Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi vegna austan hvassviðris eða storms sem spáð er undir Eyjafjöllum. Viðvörunin gildir frá klukkan 11 í dag til klukkan 17 og er eftirfarandi: „Austan 18-23 m/s undir Eyjafjöllum með hviðum um 35 m/s, en hægari vindur annars staðar á spásvæðinu. Getur verið varsamt fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.“ Annars staðar á landinu er spáð austan strekkingi eða allhvössum vindi í dag og rigningu í öllum landshlutum og það talsverðri á suðaustanverðu landinu. Í kvöld og nótt á svo að draga úr vindi og úrkomu en norðaustanátt verður vaxandi með slyddu og snjókomu á Vestfjörðum. „Austlæg átt með rigningu suðaustantil á morgun, en snýst í norðanátt með snjókomu á norðurhelmingi landsins. Um helgina er síðan útlit fyrir kaldan norðaustlægan vind með éljum norðantil, en bjart með köflum syðra,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veðurhorfur á landinu: Vaxandi austanátt, 13-20 m/s í dag, en allt að 23 m/s syðst. Víða rigning, talsverð rigning um landið suðaustanvert. Hægari vindur og þurrt norðanlands fram eftir degi. Lægir sunnantil á landinu í kvöld og dregur úr úrkomu. Hlýnandi, hiti 1 til 6 stig síðdegis. Austlæg átt, 5-13 m/s og rigning með köflum suðaustan- og austanlands í fyrramálið, en norðan 10-18 vestast og slydda eða snjókoma á Vestfjörðum. Snýst í norðan 5-13 eftir hádegi með slyddu eða snjókomu norðantil, en léttir heldur til um landið sunnanvert. Hiti 0 til 6 stig. Á föstudag: Norðan 10-15 m/s vestast á landinu, annars hægari austlæg átt. Slydda eða snjókoma á Vestfjörðum, rigning með köflum norðan- og austanlands, en annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 6 stig. Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s. Skýjað að mestu, en dálítil él með norðurströndinnni. Hiti 0 til 5 stig og vægt frost inn til landsins. Á sunnudag: Norðaustan og austanátt 5-13 m/s, en 10-15 á noðvestantil. Dálítil snjókoma á norðanverðu landinu, annars stöku skúr eða él. Hiti um og undir frostmarki. Á mánudag: Austanátt og norðaustanátt. Víða rigning um sunnanvert landið og hiti um eða rétt yfir frostmarki, en snjókoma með köflum norðantil og frost 1 til 4 stig.
Veður Mest lesið Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Innlent Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Innlent Búið að boða til nýs fundar Innlent Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Innlent Lögreglan lýsir eftir Kristínu Innlent Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Erlent Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Innlent Fleiri fréttir Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Sjá meira