Samkeppni skattkerfa og auknar fjárfestingar Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 23. nóvember 2020 10:31 Ég rakst nýverið á auglýsingu frá Viðskiptaráði Íslands (VÍ) þar sem þeir voru að auglýsa grein sína „Ósamkeppnishæft skattkerfi á krítískum tímapunkti“. Ég er sammála ýmsu sem fram kemur þar en set spurningarmerki við annað. Þrátt fyrir að lestur og skrif um skatta sé í hugum flestra allt annað en þurrt og óspennandi lesefni þá ætla ég ekki að láta freistast og fjalla ítarlega um skýrsluna sjálfa hér né ætla ég í djúpa umfjöllun um skattakenningar. Ég ætla heldur að fjalla um þá afdrifaríku niðurstöðu sem getur hlotist af því að hugsa skattkerfi og samkeppnishæfi þess út frá þeirri forsendu að undirboð þurfi að koma til, til að laða að fyrirtæki og fjárfestingu. Samkeppnishæfni skattkerfa má skilgreina á fleiri en einn veg. Hugveitan Tax Foundation, sem gaf út skýrsluna sem grein VÍ er að mestu leiti útdráttur úr, metur samkeppnishæfni skattkerfa að miklu leiti út frá þeim jaðarsköttum sem einstaklingar og fyrirtæki þurfa að greiða af tekjum sínum, neyslu og eignum. Það þýðir með öðrum orðum að því hærri sem hæstu skattar eru því ósamkeppnishæfari eru löndin. Hugsunin er að mörgu leiti skiljanleg þar sem að sú aukna hnattvæðing og sú stafræna tækni sem hefur sprottið fram á seinustu áratugum hefur liðkað verulega til fyrir flutningi fjármagns, fyrirtækja og fjárfestinga á milli landa. Almennt virðist það vera í brennidepli að horfa á skattlagningu á fyrirtæki og minna á skattlagningu einstaklinga. Kenningin er sú að lækkun skatta á fyrirtæki (eða liðka aðrar reglur sem geta aukið hagnað eftir skatta) leiði til aukinnar fjárfestingar í landinu. En hverjum er þessi samkeppni til góðs á endanum? Tökum dæmi. Land A kemst að því að það er með ósamkeppnishæft skattkerfi. Eitt ráð við því er að lækka skatta á fyrirtæki. Land A lækkar skatta og verður samkeppnishæfara í framhaldinu, mögulega eykst fjárfesting (meira um það neðar í greininni). Eftir að samkeppnishæfni A jókst áttar land B sig á því að samkeppnishæfni þess hefur versnað. Land B beitir sama ráði og land A og lækkar skatta niður fyrir skatta í landi A. Land B er á ný orðið samkeppnishæfara. Þannig getur það gengið koll af kolli. Þá er spurningin hver er loka niðurstaðan til langtíma þegar öll lönd hafa skrúfað niður skattana hjá sér til þess að verða samkeppnishæfari og laða til sín fjárfestingu. Hver er sigurvegarinn? Ef allir lækka skatta er ekkert land í raun að ná forskoti. Það eina sem gerðist var að látið var undan kröfum eða hótunum þeirra sem eiga fjármagn að þeir fari annað eða taki ekki þátt ef skattar verði ekki lækkaðir. Besta leiðin til þess að komast á toppinn í þessari skatta samkeppni væri að vera skattalaust land vegna þess að enginn gæti boðið betur og það færi enginn tími í neitt tengt skattaskilum eða álíka sem dregur úr samkeppnishæfni. Hins vegar þá er alls óvíst að sú staða myndi skila mestri fjárfestingu og alls ekki mestum jöfnuði né almennt aukinni lífsánægju. Það kemur til vegna þeirrar staðreyndar að sama hversu samkeppnishæft skattkerfið er þá þurfa lönd að bjóða upp á gott starfsumhverfi til þess að fjárfestar vilji fjárfesta þar. Í því felst að undirstöður samfélagsins þurfa að vera góðar svo sem stofnanir, innviðir, skólakerfið, heilbrigðisstofnanir o.fl. Annars er ekki hægt að fá hæft starfsfólk og koma vörum á markað með góðu móti. Þessir þættir samfélagsins eru að mestu leiti fjármagnaðir í gegnum skatttekjur. Mjög erfitt er að svara því hver sé hin fullkomna skattprósenta. Það eru einfaldlega of margar breytur, hagkerfin það flókin og svörin öll eftir því á hvað er stefnt. En það eru þó ýmsar spurningar sem er þess virði að spyrja. Svo sem hver kemur til með að hagnast á lækkun skatta á fyrirtæki? Skilar lækkun skatta á fyrirtæki nægilega mikilli aukinni fjárfestingu og leiðir það til betri lífskjara í landinu? Rökin fyrir því að lækka ætti skatta á fyrirtæki er mjög gjarnan sú að það stuðli að aukinni fjárfestingu sem verði svo öllum til góðs. Ég er hins vegar ekki svo viss um að það sé alltaf raunin. Til að mynda hefur hugveitan Economic Policy Institute sýnt í greiningum sínum á gögnum fyrir OECD löndin að það er ekki marktækt samband á milli aukinnar fjárfestingar og breytingum á tekjuskatti fyrirtækja. Raunar sýna gögnin veika fylgni milli hækkana á tekjuskatti fyrirtækja og auknum fjárfestingum ef eitthvað er. Í öllu falli tel ég að í þessari umræðu sé yfirleitt verið að viðra hugmyndir um að gera þeim efnameiri mikinn greiða í þeirri von að þeir geri svo eitthvað sem myndi nýtast fjöldanum. Ég er frekar á þeirri skoðun að ef við viljum auka fjárfestingu og koma meira lífi í hagkerfið þá sé almennt betra að nálgast það frá hinum endanum, þ.e. hinum almenna launþega. Ef það eru lækkaðir skattar á launþega eru tvær mögulegar útkomur eða blanda af þeim. Í fyrsta lagi væri þá hægt að borga starfsmönnum lægri laun (fyrir skatta) þannig að þeir endi samt með sama fjármagn í vasanum. Það þýðir að það er auðveldara að reka fyrirtæki, rétt eins og ef fyrirtækið sjálft hefði fengið skattalækkun. Hins vegar væri hægt að borga starfsmönnum sömu laun fyrir skatta og þeir enda þá með meira í vasanum. Það leiðir þá til þess að fleiri hafa ráð á að kaupa meira og fyrirtækin standa frammi fyrir aukinni eftirspurn og hærri tekjum þar af leiðandi. Loka niðurstaðan er sennilega blanda af þessu tvennu en það ætti að leiða til sömu niðurstöðu og hin meintu áhrif þess að lækka skatta á fyrirtæki. Ég hins vegar treysti mun frekar þeim efnaminni til þess að koma fjármununum beint í umferð og þar með hagkerfinu á hreyfingu fremur en þeim sem eru þegar efnamiklir. Vandinn í dæminu með lönd A og B er að löndin eru í samkeppni í stað þess að sameinast um markmið og fá þannig bætta samningsstöðu líkt og verkalýðsfélög gera fyrir félagsmenn sína. Ég tel að mörg af þeim stærstu vandamálum sem við stöndum frammi fyrir í dag og munum koma til með að standa frammi fyrir í framtíðinni eigi rætur sínar að rekja til hvernig skattlagningu er háttað. Þá á ég við hvernig við bregðumst við þessari samkeppni og þrýstingi um að láta undan stórfyrirtækjum. Þær glufur sem eru í skattkerfunum sem gera fyrirtækjum kleift að flytja óskattlagðar tekjur í skattaskjól og borga ekki sinn skerf til samfélagsins. Þann vanda sem skattlagning á fyrirtækjasamsteypur sem starfa í mörgum löndum er, sér í lagi þær sem starfa mest megnis í gegnum internetið líkt og stóru samfélagsmiðlanir gera. Einnig hvernig risa fjölskyldufyrirtæki erfast frá kynslóð til kynslóðar með þeim gríðarlegu ítökum á samfélögin sem þau starfa í. Því er mikilvægt að sofna ekki á verðinum. Við Íslendingar þekkjum vel hvað það getur verið erfitt að breyta hlutunum eftir á og sem dæmi má nefna hvernig komið er fyrir okkur með kvótakerfið, verðtryggð lán og fleiri ólán sem við höfum leyft að ganga yfir okkur. Höfundur er viðskiptafræðingur og doktorsnemi í hagfræði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur V. Alfreðsson Skattar og tollar Mest lesið Halldór 25.04.2026 Halldór Getnaðarsigur og fullnægjandi árangur María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hverfin hverfast um íþróttafélögin Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Húsnæði er ekki lúxus – rödd ungu kynslóðarinnar Aleksandra Jania skrifar Skoðun Aftur til fortíðar – leikskólinn sem réttur eða geymsla? Kristín Dýrfjörð skrifar Skoðun Sterkari stuðningur við börn í grunnskólum Kópavogs Björg Baldursdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisþjónusta eftir póstnúmeri Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir skrifar Skoðun Ungt fólk þarf að vita hvar bjargræðin liggja Sigrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Neyðarútgangur út úr olíukreppunni Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar Skoðun Ábyrgðarmörk og vinnufriður þegar pólitík mætir fagmennsku Andrés Bertelsen skrifar Skoðun Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Læknisþjónusta á ferðalögum Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Miðflokkurinn í Kópavogi treystir konum Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Afnemum vaxtarmörk í Hafnarfirði - Byggjum fyrir fólkið Arnhildur Ásdís Kolbeins skrifar Skoðun Þið eruð bara eins og hlaupár Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Jafnrétti er ákvörðun Ása Björk Jónsdóttir,Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir Skoðun
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar
Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar
Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir skrifar
Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar
Skoðun Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar
Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir Skoðun