Stormur, stórhríð og hörkufrost í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. desember 2020 06:57 Fyrsta norðanáhlaup vetrarins er væntanlet með tilheyrandi ofankomu og kulda. Vísir/Vilhelm Í dag, á morgun og fram á föstudag er útlit fyrir fyrsta alvöru norðanáhlaup vetrarins með stormi, stórhríð og ísköldu heimskautalofti sem herðir á frostinu.
Gular viðvaranir verða í gildi um nánast allt land og taka þær gildi á mismunandi tímum og standa mislengi. Sums staðar gætu vindhviður farið upp í allt að 40 til 45 metra á sekúndu, að því er fram kemur á viðvörunarvef Veðurstofu Íslands. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að útlit sé fyrir vaxandi norðanátt, víða verði hvassviðri eða stormur eftir hádegi og jafnvel enn hvassara í kvöld í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls. Þá er búist við snjókomu á norðurhelmingi landsins og sums staðar talsverðri ofankomu á Norðurlandi. Sunnan heiða verður lítil úrkoma en þó lítils háttar él sums staðar. Það mun kólna í veðri og frysta á landinu í dag. „Á morgun er ekkert nema norðan stormur í kortunum og enn hvassara í vindstrengjum sunnan undir fjöllum og þá einkum á suðaustanverðu landinu. Það verður snjókoma eða él norðan- og austanlands. Áfram líkur á dálitlum éljum sunnantil á landinu. Það herðir á frostinu þegar ískalt heimskautaloft streymir yfir okkur úr norðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Í þessu norðanáhlaupi sem hefst í dag og stendur fram á föstudag verður vindstyrkur og snjókomumagn væntanlega nægilegt til að það megi tala um stórhríð, að minnsta kosta á einhverjum köflum um tíma. „Ekki er gert ráð fyrir að vind lægi að gagni fyrr en síðdegis á föstudag, þá fyrst vestast á landinu. Þá styttir einnig upp fyrir norðan og austan. Eins og oft vill verða þegar lægir og léttir til eftir kalda norðanátt, þá hækkar frosttölur á hitamælum og horfur eru á hægum vindi um helgina með hörkufrosti,“ segir í hugleiðingunum. Hér má lesa á vef Veðurstofunnar um þær viðvaranir sem hafa nú þegar tekið gildi vegna veðursins eða taka gildi síðar í dag. Veðurhorfur á landinu: Vaxandi norðanátt í dag, víða 15-23 m/s eftir hádegi og hvassara í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls undir kvöld. Snjókoma á norðurhelmingi landsins, sums staðar talsverð ofankoma á Norðurlandi, en úrkomulítið sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig. Norðan 18-25 m/s á morgun, en 23-28 í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu. Snjókoma eða él norðan- og austanlands. Úrkomulaust að mestu sunnan heiða, en þó sums staðar lítilsháttar él á þeim slóðum. Frost 2 til 8 stig. Á fimmtudag: Norðan 18-25 m/s, en 23-28 í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu. Snjókoma eða él norðan- og austanlands. Sums staðar dálítil él sunnan heiða. Frost 2 til 8 stig. Á föstudag: Norðan 13-20, en hvassara suðaustantil. Él á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Lægir og styttir upp seinnipartinn, fyrst vestast á landinu. Herðir á frosti. Á laugardag og sunnudag: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Víða bjartviðri, en stöku él syðst á landinu og einnig á Vestfjörðum. Frost 5 til 18 stig.
Veður Mest lesið Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Innlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Erlent Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Erlent Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Innlent Fjarlægðu „óvelkominn aðila“ af öldrunarheimili Innlent Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Innlent Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Erlent Hiti nær 22 stigum fyrir austan Innlent Fleiri fréttir Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Sjá meira