Lífið samstarf

Falleg gjafavara fyrir heimilið

Vogue fyrir heimilið

Fallegar heimilisvörur er tilvalið að gefa um jólin. Vogue fyrir heimilið býður glæsilegt úrval.

Jólagjöfin í ár leynist að öllum líkindum í Vogue fyrir heimilið en verslunin býður mikið úrval af fallegri gjafavöru.

„Við eigum til frábærar jólagjafir sem gleðja,“ segir Steinn Kári hjá Vogue fyrir heimilið.

„Til dæmis má nefna japanska hnífa fyrir ástríðukokkana í eldhúsinu og hágæða vínglös frá helstu glasaframleiðendum heims. Vínglösin frá Riedel tróna þar á toppnum en við bjóðum eitt mesta úrval landsins af þessum uppáhaldsglösum vínsérfræðingsins,“ segir Steinn en sagan segir að vín smakkist aldrei betur en í glasi frá Riedel.

„Allir helstu vínþjónar heims þjóna gestum sínum með Riedel glösum og vínáhugamenn og sérfræðingar vilja helst ekki drekka góðu vínin sín nema úr alvöru kristals vínglasi frá Riedel.“

Fínerí fyrir heimilið

Georg Jensen, Bitz og fleiri góða framleiðendur er að finna í hillum Vogue. Vinsælasta varan í jólagjafakaupum landans er þó híbýlailmur frá Aeron Home Perfumes sem rýkur út um leið og sendingar berast til landins.

„Ilmirnir fráAeron Home Perfumes hafa algjörlega slegið í gegn. Það hefur gripið um sig sannkallað æði hjá Íslendingum fyrir Vanilla Black ilminum enda viljum við meina að þetta sé sennilega besti ilmur í heimi,“ segir Steinn. „Við höfum varla undan að flytja hann inn til landsins.“

Nánar á vogue.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.