Fráskilinn kærði pabba og mömmu fyrir að henda kláminu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. desember 2020 23:07 Dómarinn fyrirskipaði báðum málsaðilum að skila inn verðmati á klámsafninu. Unsplash/Gabriel Petry Bandarískur maður hefur unnið mál á hendur foreldrum sínum, sem gerðust sek um að henda klámsafni sonarins. David Werking sagði foreldra sína ekki hafa haft neinn rétt á því að farga kláminu og dómarinn Paul Maloney var honum sammála.
Niðurstaðan gerir Werking kleift að sækja bætur á hendur foreldrum sínum en hann metur safnið á 3,7 milljónir króna. Málsatvik eru þau að Werking flutti inn til foreldra sinna í Grand Haven í kjölfar skilnaðar og bjó hjá þeim í tíu mánuði. Á sambúðartímanum tóku pabbi og mamma sig til og hentu kössum af klámmyndum og -tímaritum en fyrir dómi sögðust þau í fullum rétti sem leigusalar sonar síns. Dómarinn sagði þau hins vegar ekki hafa vísað í nokkur lög né dómafordæmi til að styðja þá fullyrðingu sína að leigusölum væri heimilt að farga eignum sem þeim mislíkaði. „Það leikur enginn vafi á því að umrædd eign var eign David,“ sagði Maloney. „Sakborningarnir viðurkenndu ítrekað að hafa fargað eigninni.“ Dómarinn fyrirskipaði báðum málsaðilum að skila inn verðmati á klámsafninu. Það fylgir ekki sögunni hvort safnið átti þátt í skilnaði Werking. Guardian sagði frá.
Bandaríkin Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira