Skoðun

Þegar mennskan og sam­vinnan ræður för

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar

Það eru óvenjulegir tímar og samfélagið allt stendur í sömu sporum. Allir hugsa um það sama og leita leiða til að bregðast við af skynsemi, gera það sem hægt er og aðstæður leyfa, en allt getur það umbreyst á morgun. Mestu skiptir að við leggjum öll okkar af mörkum til þess verkefnis sem Covid-19 faraldurinn færir okkur. Öll sem eitt.

Fyrirmyndirnar sjáum við og heyrum á hverjum einasta degi. Þau eru allt í einu rútínan sjálf. Alma, Víðir og Þórólfur. Af einstökum eldmóð ná þau í gegn með hvatningu til okkar hinna um að halda áfram af jákvæðni og festu þar sem mennskan umlykur þau svo ofur fallega.

Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með þríeykinu okkar allra sem stýrir þeim aðgerðum sem við þurfum að grípa til. Það gefur sannarlega von og styrk þegar fólk eins þau kemur fram af svo mikilli nákvæmni, yfirvegun, mennsku og í takt við hvert annað.

Því er það virkilega traustvekjandi að sjá sveitarfélögin leggjast saman á árarnar og takast á við þau mörgu, krefjandi og fjölbreyttu verkefni sem fylgja vágestinum.

Við í minnihluta bæjarstjórnar Garðabæjar erum til reiðu og bjóðum okkur fram til samráðs og samtals. Sem stendur fylgjumst við grannt með, hlustum þegar við erum upplýst og tökum þátt í umræðunum um verkefnin á vettvangi pólitíkurinnar í bæjarráði og bæjarstjórn.

Það er mikilvægt að finna einhuginn og kraftinn í fólkinu okkar og ljóst að nú mæðir mikið á öllu starfsfólki sveitarfélaganna, en ekki síður á pólitíkinni. Við verðum að sýna samstöðu í verki af fagmennsku og einurð.

Það er trú mín að við sem samfélag getum gert þetta saman. Við öndum í kviðinn og hjálpumst að. Róðurinn verður þungur og mun koma misjafnlega við hvert og eitt okkar og því skiptir enn meira máli að við látum okkur varða um hvert annað.

Ég vil trúa því að Garðabær og nágrannasveitarfélögin leggi sitt af mörkum veita þarf aukinn efnahagslegan stuðning við starfsemi fyrirtækja, en ekki síður mannauðinn, fólkið sjálft. Það mun kosta aukin útgjöld. En það er bara þannig. Við munum kappkosta að halda í störf og þjónustu.

Ég vil hvetja okkur öll sem eitt til að hlúa vel að hvert öðru og horfa til þess smáa, sem skiptir oft svo miklu máli. Njótum þess sem er og styðjum hvert annað. Pössum upp á að næra líkama og sál. Nýtum nærumhverfið til útivistar í okkar einstöku náttúru allt um kring og höldum í styrkinn okkar hvert og eitt.

Þéttum raðirnar og bjóðum okkur fram til aðstoðar þar sem við getum og treystum okkur til.

Gangi okkur öllum sem allra best.

Höfundur er oddviti og bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans í Garðabæ.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×