Elvar Már valinn bakvörður ársins í Svíþjóð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. apríl 2020 11:36 Elvar Már í landsleik gegn Portúgal. vísir/bára
Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfubolta, var valinn bakvörður ársins í sænsku úrvalsdeildinni. ÅRETS GUARD: ELVAR FRIDRIKSSON Han har dominerat SBL både offensivt och defensivt den här säsongen. Idag utses @BorasBasket:s islänning Elvar Fridriksson till Årets Guard! Läs mer här: https://t.co/aR6BvKOZFF#SBL #SBLHerr #SBLAwards pic.twitter.com/09DA5kWsyL— SBL Herr (@basketsverige) April 2, 2020 Njarðvíkingurinn lék einkar vel á sínu fyrsta tímabili með Borås Basket. Tímabilið var flautað af vegna kórónuveirunnar og Borås krýnt meistari. Liðið var á toppi deildarinnar þegar keppni var hætt. Elvar var bæði stiga- og stoðsendingahæsti leikmaður liðsins og var með hæsta framlag allra leikmanna þess. Þá var Elvar stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar. Í 33 deildarleikjum var Elvar með 16,7 stig, 2,9 fráköst og 7,7 stoðsendingar að meðaltali. Framlagsstigin voru 18,1. Hann var með 49,8% nýtingu í tveggja stiga skotum og 39,5% í þristum. Elvar fékk 44% í kjörinu á bakverði ársins. Í 2. sæti varð Bandaríkjamaðurinn Brandon Rozzel, leikmaður Luleå, með 24% atkvæða. Hann lék með Stjörnunni seinni hluta síðasta tímabils.
Körfubolti Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Fleiri fréttir Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Hefur Ben Simmons náð botninum? Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar „Fannst þeir sýna meiri hörku, sem ég átti erfitt með“ „Auðvitað söknum við okkar besta og reynslumesta manns“ Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir „Eins og þeim finnist ekkert gaman að spila körfubolta“ Mæta sitthvoru ítalska liðinu í leikjunum tveimur „Löngu kominn tími til að fara á EuroBasket“ Ævintýraleg upphafsár Kananna í körfu á Íslandi „Hvernig eigum við að ná á EM ef að landsliðsmenn okkar eru ekki í liðinu?“ Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Gafst upp á að læra frönskuna Tekst á við lífið á nýjum stað: „Svolítið óstabílt umhverfi“ LeBron James hættur á samfélagsmiðlum Sjá meira