Köldu norðlægu áttirnar ekkert að gefa eftir Atli Ísleifsson skrifar 21. janúar 2021 07:41 Veðurstofan gerir ráð fyrir að það bæti heldur í vind og ofankomu fyrir norðan á morgun, en annars svipað veður. Vísir/Vilhelm Köldu norðlægu áttirnar með ofankomu fyrir norðan og austan eru ekkert að fara að gefa eftir næstu daga. Einna helst er að sjá að hiti nái að skríða yfir frostmark syðst á landinu.
Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar í morgun. Spáð er norðan- og norðaustan átta til fimmtán metrum á sekúndu, en hvassara á stöku stað. Él á norðurhluta landsins, en bjart sunnan heiða. Bætir heldur í vind og ofankomu fyrir norðan á morgun, en annars svipað veður. Frost víða 1 til 6 stig, en frostlaust syðst og austast. Vetrarfærð er í flestum landshlutum og ófært á nokkrum leiðum eftir nóttina. Á Norður- og Austurlandi er víða skafrenningur eða éljagangur. Vegirnir um Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarveg eru lokaðir vegna snjóflóðahættu. Ófært er á Öxnadalsheiði og á milli Hofsós og Ketilsás. Þungfært er á milli Dalvíkur og Hjaleyrar einnig á Grenivíkurvegi. Þæfingsfærð er á milli Sauðárkróks og Hofsós, en nánari upplýsingar um færð á vegum má finna á vef Vegagerðarinnar. Spákortið fyrir hádegið.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag og laugardag: Norðan 13-20 m/s og snjókoma eða él, hvassast SA-lands, en skýjað með köflum og þurrt að kalla sunnan heiða. Frost víð 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við sjávarsíðuna. Á sunnudag: Norðan 8-15 m/s og él, en léttskýjað S- og V-lands. Frost 1 til 8 stig, minnst syðst. Á mánudag: Norðankaldi og víða dálítil él, en austlægari syðst og líkur á snjókomu þar. Harðnandi frost. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir áframhaldandi norðaustlæga átt með úrkomu fyrir norðan og austan, en yfirleitt þurrt annars staðar. Áfram kalt í veðri.
Veður Mest lesið Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Innlent Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Innlent Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Erlent Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Bíll í ljósum logum á Skaganum Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Fleiri fréttir Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Sjá meira