Báðar tillögurnar felldar og áfram tólf liða efsta deild karla með tvöfaldri umferð Anton Ingi Leifsson skrifar 27. febrúar 2021 15:24 Frá leik KR og Stjörnunnar á síðustu leiktíð. vísir/hulda margrét Hvorki tillaga starfshóps KSÍ eða Fram um breytingu á efstu deild karla náðu í gegn. Þetta var staðfest á ársþingi KSÍ sem fer fram með rafrænum hætti í dag.
Þurfti stuðning 2/3 greiddra atkvæði til þess að breytingarnar færu í gegn en svo var ekki. Efsta deild karla verður því með óbreyttu sniði tímabilið 2022. Tillaga Fram fékk 71 já af þeim 122 sem kusu, 58,2 prósent og var því felld. Tillaga stjórnar KSÍ fékk 68 já frá þeim 124 sem kusu, 54,88 prósent fylgi og var því felld. Í stuttu máli snýst tillaga stjórnar KSÍ, sem byggir á vinnu starfshóps, um að hafa áfram 12 lið í deildinni en skipta henni í tvennt eftir hinar venjulegu 22 umferðir. Hvert lið fengi þá fimm aukaleiki því efstu sex liðin myndu mætast innbyrðis í úrslitakeppni og neðstu sex liðin sömuleiðis. Fram setti þá tillögu fram á borðið að fjórtán lið myndu leika í efstu deild karla. Leikin yrði tvöföld umferð. Fylkir og ÍA drógu sínar tillögur til baka. Fylkismenn vildu fækka í tíu lið og spila þrefalda umferð en Skagamenn vildu halda liðunum í tólf og spila þess í stað þrjár umferðir.
Pepsi Max-deild karla KSÍ Tengdar fréttir Í beinni: Kosið um breytingar á efstu deild karla Í dag fór fram ársþing KSÍ en vegna samkomutakmarkanna vegna kórónuveirunnar fer þingið í ár fram rafrænt. 27. febrúar 2021 12:31 Tekst að knýja fram breytingar á Pepsi Max deild karla? Hugsanlega mun aðeins ein tillaga af fjórum standa eftir um breytingar á úrvalsdeild karla í fótbolta, Pepsi Max-deildinni, þegar fulltrúar knattspyrnufélaga landsins ganga til kosninga á laugardaginn. Óvissa ríkir um hvort nokkur breyting verði samþykkt. 25. febrúar 2021 12:31 Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira
Í beinni: Kosið um breytingar á efstu deild karla Í dag fór fram ársþing KSÍ en vegna samkomutakmarkanna vegna kórónuveirunnar fer þingið í ár fram rafrænt. 27. febrúar 2021 12:31
Tekst að knýja fram breytingar á Pepsi Max deild karla? Hugsanlega mun aðeins ein tillaga af fjórum standa eftir um breytingar á úrvalsdeild karla í fótbolta, Pepsi Max-deildinni, þegar fulltrúar knattspyrnufélaga landsins ganga til kosninga á laugardaginn. Óvissa ríkir um hvort nokkur breyting verði samþykkt. 25. febrúar 2021 12:31