Lífið

Fyrsta stiklan úr Vegferð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Darri og Víkingur Kristjánsson fara með aðalhlutverkin.
Ólafur Darri og Víkingur Kristjánsson fara með aðalhlutverkin.

Vegferð er sex þátta sería sem hefur göngu sína á Stöð 2 á páskadag, þann 4. apríl. Ólafur Darri Ólafsson og Víkingur Kristjánsson fara með aðalhlutverk í þáttunum.

Vegferð fjallar um ferðalag þeirra tveggja um Ísland en það tekur óvænta stefnu sem reynir á vináttu þeirra og neyðir þá til að horfast í augu við eigin tilfinningar, karlmennsku og stolt.

Baldvin Z leikstýrir þáttunum og Glassriver framleiðir en tökur á þeim hófust síðasta sumar. Handrit þáttanna er eftir Víking sjálfan, tónlist eftir Birgi Tryggvason og Helga Rós V. Hannam sér um búninga.

Hér að neðan má sjá fyrsta sýnishornið úr þáttunum.

Klippa: Fyrsta stiklan er Vegferðinni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.