Solskjær sendi De Gea í fæðingarorlof Sindri Sverrisson skrifar 4. mars 2021 16:01 Edurne og David de Gea eru að verða foreldrar. @edurnity og Getty/Jonathan Moscrop David de Gea, markvörður Manchester United, er farinn til Spánar en eiginkona hans, poppstjarnan Edurne, á von á þeirra fyrsta barni. Dean Henderson verður því í marki United í næstu leikjum.
Þessu greinir enska götublaðið Daily Mail frá í dag. Blaðið segir að De Gea hafi glaður verið reiðubúinn að halda áfram að spila með United en að Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri United, hafi ákveðið að betra væri að De Gea yrði með fjölskyldu sinni þar til eftir landsleikjahléið í lok þessa mánaðar. Henderson fær samkvæmt þessu tækifæri til að láta ljós sitt skína í sex leikjum, meðal annars í stórleikjunum gegn Manchester City um helgina og gegn AC Milan í Evrópudeildinni. Henderson varði mark United í gærkvöldi, í markalausu jafntefli við Crystal Palace, en Solskjær vildi þá ekki útskýra fjarveru De Gea. Henderson, sem var að láni hjá Sheffield United í tvö ár, hefur haldið markinu hreinu í átta af 13 leikjum sínum með United en staðið í skugga De Gea. Hann er 23 ára gamall og vonast til að fá sæti í enska landsliðshópnum á EM í sumar.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira