HK kom til baka og Keflavík lagði ÍBV Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. mars 2021 14:15 HK bjargaði stigi á Hlíðarenda eftir að hafa lent 2-0 undir. Vísir/Bára Tveimur leikjum er nú lokið í Lengjubikar karla og kvenna. HK kom til baka og nældi í 2-2 jafntefli gegn Íslandsmeisturum Vals. í kvennaflokki unnu nýliðar Keflavíkur 2-1 sigur á ÍBV.
Á Hlíðarenda var HK í heimsókn. Heimamenn voru ekki beint gestrisnir framan af leik en Kaj Leo í Bartalsstovu kom Val yfir undir lok fyrri hálfleik. Varnarmaðurinn – og fyrrum leikmaður HK – Orri Sigurður Ómarsson tvöfaldaði forystu Vals þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Varamaðurinn Stefan Alexander Ljubicic minnkaði muninn fyrir HK þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka. Hann var svo aftur að verki þegar þrjár mínútur lifðu leiks og staðan orðin 2-2. Reyndust það lokatölur leiksins. Var þetta fyrsti leikurinn sem Val tekst ekki að vinna í Lengjubikarnum en Íslandsmeistararnir eru nú á toppi riðilsins með 10 stig að loknum fjórum umferðum. HK r með sjö stig í öðru sæti riðilsins. Í Keflavík voru Eyjastúlkur í heimsókn. Ragna Sara Magnúsdóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark um miðbik fyrir hálfleiks og var Keflavík því 1-0 yfir í hálfleik. Thelma Sól Óðinsdóttir jafnaði leikinn í upphafi síðari hálfleiks og stefndi lengi vel í að leiknum myndi ljúka með 1-1 jafntefli. Natasha Moraa Anasi var á öðru máli en hún skoraði sigurmark leiksins á 89. mínútu og sigurinn því Keflvíkinga. Lokatölur 2-1 og Keflavík nú með sex stig að loknum þremur leikjum á meðan ÍBV er án stiga að loknum tveimur leikjum.
Fótbolti Keflavík ÍF HK Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira