Frá þessu greindi Brynjar Karl í ítarlegu spjalli við Kjartan Atla Kjartansson í hlaðvarpsþættinum Sportinu í dag. Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan (umræðan um kaup á húsnæði hefst þegar 2 tímar eru búnir af þættinum) eða í útvarpsappi Bylgjunnar.
Stelpurnar í Aþenu hafa þurft að spila undir merkjum Ungmennafélags Kjalnesinga á meðan að ÍSÍ hefur dregið lappirnar við að staðfesta lög félagsins. Í vikunni sagði framkvæmdastjóri ÍSÍ, Líney Rut Halldórsdóttir, við Vísi að vegna þjálfunaraðferða Brynjars sem birtust í heimildarmyndinni Hækkum rána, og umræðu eftir sýningu myndarinnar, vildi ÍSÍ taka málið til frekari skoðunar og afla upplýsinga áður en það fengi afgreiðslu.
Brynjar Karl vonast til að hvoru tveggja breytist, helst á þessu ári. Að Aþena spili undir eigin nafni og að liðið geti æft og spilað í eigin húsnæði, nær heimilum iðkenda.
„Ég er búinn að vera tvö síðustu sumur hársbreidd frá því að breyta vöruhúsi í körfuboltasal, með svona „portable“ lausnum. Þá erum við bara að tala um að leigja þetta. En svo er ég reyndar með nýja hugmynd núna sem ég var bara að ræða við stelpurnar áður en við komum hingað. Ég fann algjört draumahús í hjarta borgarinnar, vöruskemmu, og var að ræða við menn um að kaupa það. Húsið kostar milljarð og við erum að hugsa um að fara í fjáröflun,“ sagði Brynjar Karl.
Segir að í Reykjavík skipti íþróttafélögin meira máli en iðkendur
Kjartan Atli benti á að það þyrfti að selja ansi margar klósettpappírsrúllur til að safna upp í einn milljarð króna og spurði hvernig hægt yrði að fjármagna kaupin:
„Ég ætla að gera heiðarlega tilraun. Mér finnst þetta svo spennandi verkefni,“ sagði Brynjar. Ástæðan fyrir því að Aþenufólk vill kaupa húsnæði er einföld:
„Við fáum hvergi inni. Hvað á ég að gera? Þú veist hvernig þetta er í Reykjavík. Í Reykjavík er þetta þannig að það eru „ættbálkar“, sem eiga hverfin. Ég veit ekki hvort þetta er óformlegt eða formlegt samkomulag… Nú er ég úr Fellunum og komst að því að það væru lausir tímar í Fellaskóla, en ástæðan fyrir því að við megum ekki fara inn í Fellaskóla er að ÍR er með einokun á körfubolta í einhverju póstnúmeri.
Menn kalla þetta „íslensku leiðina“ og eru voðalega hrifnir af þessu, en vankantarnir eru að ef að íþróttafélagið þitt er ekki að standa sig þá er íþróttafélagið samt alltaf varið. Þetta er rosalega spes. Ég er ekkert hérna til að væla yfir því. Ef að fólk vill hafa þetta svona, að íþróttafélagið skipti meira máli en iðkendurnir, þá verður bara svo að vera. Þá verður maður bara að eiga sitt eigið hús,“ sagði Brynjar.
Aðspurður hvort hægt yrði að láta hugmyndina verða að veruleika, til að mynda á næstu fjórum árum, sagði Brynjar:
„Ef við gerum þetta þá gerist þetta á þessu ári. Ég er löngu búinn að búa til fyrstu útgáfu að viðskiptamódelinu um hvað verður þarna inni,“ en nánar er rætt við Brynjar í þættinum hér að ofan.