Körfubolti

Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stór­leik þeirrar argentínsku

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diljá Ögn Lárusdóttir var enn á ný frábær í Stjörnuliðinu en hún hefur farið á kostum í sigurgöngunni.
Diljá Ögn Lárusdóttir var enn á ný frábær í Stjörnuliðinu en hún hefur farið á kostum í sigurgöngunni. Vísir/Hulda Margrét

Stjarnan hélt sigurgöngu sinni áfram í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld með þrettán stiga sigri á Tindastól, 93-80.

Stjörnukonur misstu marga leikmenn í haust og töpuðu svo fyrsta leik tímabilsins en hafa heldur betur svarað því. Þetta var þriðji sigurleikur liðsins í röð.

Stjörnuliðið réði reyndar illa við argentínsku landsliðskonuna Florenciu Chagas en 41 stig frá henni voru ekki nóg fyrir Stólana. Chagas skoraði sjö þrista og hitti úr 59 prósent skota sinna utan af velli.

Diljá Ögn Lárusdóttir var enn á ný frábær í Stjörnuliðinu með 26 stig og Eva Wium Elíasdóttir skilaði næstum því þrennu með 15 stigum, 7 fráköstum og 13 stoðsendingum. Agnes María Svansdóttir skoraði 20 stig og tók 7 fráköst. Xaviera Dyer var síðan með 6 stig, 14 fráköst og 4 stoðsendingar. Stina Almqvist skoraði 17 stig og tók 11 fráköst.

Tindastólsliðið byrjaði leikinn vel og var 25-19 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Stjörnukonur svöruðu hins vegar með frábærum öðrum leikhluta sem Garðbæingar unnu með ellefu stiga mun, 27-16. Florencia Chagas var komin með 22 stig fyrir Stólana í hálfleik en liðið var samt fimm stigum undir, 46-41.

Kolbrún María Ármannsdóttir klikkaði á öllum níu skotum sínum í fyrri hálfleik en byrjaði þann síðari á því að setja niður þrist. Því miður fyrir gestina var það stutt gaman því landsliðskonan átti afar erfitt kvöld á móti uppeldisfélaginu sínu. Stjörnukonur voru áfram skrefinu á undan og unnu sannfærandi sigur.

Kolbrún endaði með 8 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar en klikkaði á 18 af 21 skoti sínu. Stólarnir unnu tvo fyrstu leiki sína en hafa nú tapað tveimur leikjum í röð. Chagas var langstigahæst en Ana Clara Paz skoraði 13 stig. Tindastólsliðið lék án bandarísks leikmanns í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×