Sólríkt veður á Suður- og Vesturlandi Atli Ísleifsson skrifar 28. apríl 2021 07:05 Margir á höfuðborgarsvæðinu nýttu góða veðrið um liðna helgi. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir norðlæga átt, þrír til átta metrar á sekúndu, en átta til þrettán með austurströndinni. Það léttir til á Suður- og Vesturlandi og má því búast við sólríku veðri þar í dag með hita átta til þrettán stig.
Á vef Veðurstofunnar segir að þó beri að nefna að horfur séu á smáskúrum allra syðst undir kvöld. „Annað er uppi á teningnum norðaustan- og austanlands, þar er útlit fyrir skýjað veður og lítilsháttar él eða skúrir láta á sér kræla. Hiti á þessum slóðum ekki nema 0 til 5 stig. Á morgun er búist við hægum vindi, áttin vestlæg eða breytileg. Skýjafar á landinu snýst við ef svo má segja, því útlit er fyrir þurrt og bjart veður á Norður- og Austurlandi. Sunnan og vestanlands verður hins vegar skýjað og smávegis væta hér og þar. Hiti á morgun yfirleitt á bilinu 5 til 10 stig.“ Spákortið fyrir klukkan 13 eins og það leit út í morgun.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt. Bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Skýjað annars staðar og sums staðar dálítil væta sunnanlands. Hiti 5 til 10 stig yfir daginn. Á föstudag: Gengur í norðaustan 8-13 m/s. Él norðan- og austanlands, rigning eða slydda um landið sunnanvert, en þurrt á Vesturlandi. Hiti frá frostmarki fyrir norðan, upp í 7 stig með suðurströndinni. Á laugardag: Norðaustan 5-13 og dálítil él norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Norðaustan og austan 3-10. Skýjað um landið austanvert, en bjartviðri vestantil. Hiti frá 0 stigum í innsveitum á Austurlandi, upp í 8 stig yfir daginn á Suðvesturlandi. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir norðlæga átt. Skýjað og úrkomulítið norðaustantil á landinu, hiti um frostmark. Þurrt og bjart sunnan- og vestanlands með hita að 9 stigum yfir daginn.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Sjá meira