Fyrir liggur að Katla hefur vakið mikla athygli og umræður hafa sprottið upp um þættina nánast á öllum póstum. Sem dæmi hafa þeir tekist á um þættina, leikstjóri og framleiðandinn Baltasar Kormákur og Jón Viðar Jónsson leiklistargagnrýnandi.
Arnar er framkvæmdastjóri Irmu Studio, sem sérhæfir sig í leikmyndagerð, og segir hann í færslu á Facebook að þrátt fyrir að Irma hafi komið að hönnun og smíði á leikmyndinni hafi þess ekki verið getið í kreditlista þáttanna.
„Það var ákveðið að nefna það ekki í kredit listanum og þar að auki er önnur manneskja sem tekur allan heiðurinn að hönnuninni,“ skrifar Arnar í færslunni.
Yfirgaf verkefnið á ögurstundu
Sigurjón Kjartansson, annar leikstjóra Kötlu og handritshöfundur þáttanna, lætur þessu ekki ósvarað. Hann skrifar í athugasemd við færsluna að allir sem hafi komið að leikmyndasmíðinni hafi fengið „kredit“ og þar með taldir allir sem komu frá Irmu.
„Heimir Sverrisson sem tók upphaflega að sér að hanna leikmyndir Kötlu ákvað að yfirgefa verkefnið þremur vikum fyrir tökur vegna listræns ágreinings við leikstjóra verkefnisins og bað skriflega um að vera tekinn af kreditlista. Við því var orðið,“ skrifar Sigurjón.
„Tímasetningin var vægast sagt óheppileg og setti framleiðsluferlið óhjákvæmilega í uppnám, en með frábæru teymi tókst að ljúka hönnun og uppsetningu leikmynda í tæka tíð fyrir fyrsta tökudag samkvæmt óskum framleiðenda,“ bætir Sigurjón við.
Listrænn ágreiningur eða fyrirsláttur
Arnar svarar þessu og segir listrænan ágreining vera áhugaverða túlkun á því sem hafi átt sér stað.
„Það er rétt, Heimir hætti í verkefninu með skriflegum hætti og baðst undan að fá kredit fyrir sín störf. En til að lægja ölduganginn var tekinn fundur og sáttum náð með undirritun samnings við Heimi sem leikmyndahönnuð i verkinu og er ég með þann samning undir höndum,“ skrifar Arnar. Og hann bætir við:
„Því miður var þeirri sátt ekki haldið til streitu. Og þetta skýrir heldur ekki rangtitil í minn garð. Og þetta skiptir máli, og þetta snýst ekki um titlatog, heldur algjört virðingarleysi í garð vinnandi fólks.“
Þá áréttar Arnar í uppfærðri færslu að með því að minnast á aðkomu Irmu í hönnun og smíði á leikmyndinni sé hann ekki að gera lítið úr störfum þess sem titlaður er sem hönnuður á verkinu.
„Þvert á móti. En lokaútkoman er frábær í alla staði þökk sé góðu fólki í deildinni. Takk fyrir samstarfið.“
Hvorki Sigurjón né Arnar vildu tjá sig nánar um málið og þennan ágreining þegar Vísir falaðist eftir því.
Fréttin hefur verið uppfærð.