Sterkur sigur Stefáns og félaga í Silkeborg Valur Páll Eiríksson skrifar 6. ágúst 2021 18:30 Stefán Teitur Þórðarson spilaði 75 mínútur í góðum sigri kvöldsins. silkeborgif.com Silkeborg vann 4-1 sigur á Viborg í fyrsta leik fjórðu umferð úrvalsdeildar karla í fótbolta í Danmörku. Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Silkeborgara.
Stefán Teitur byrjaði á miðjunni hjá Silkeborg, sem er nýliði í deildinni eftir að hafa komið upp í B-deildinni í vor. Um nýliðaslag var að ræða, þar sem Viborg vann B-deildina í fyrra. Silkeborg var með þrjú stig eftir fyrstu þrjá leikina, en Viborg var með stigi meira í jafnri töflunni. Markalaust var fram á 43. mínútu leiksins þegar Sebastian Jörgensen, framherji Silkerborgar, kom liðinu í forystu skömmu fyrir hlé. Hann skoraði svo sitt annað mark á 69. mínútu eftir stoðsendingu frá Nicolai Vallys. Jörgensen launaði greiðann með því að leggja upp mark fyrir Vallys níu mínútum síðar og sigur heimamanna gott sem í höfn. Christian Sörensen minnkaði muninn fyrir Viborg sex mínútum fyrir leikslok en Alexander Lind innsiglaði 4-1 sigur Silkeborgar seint í uppbótartíma. Stefán Teitur fór af velli á 75. mínútu í liði Silkeborgar, í stöðunni 2-0, en sigur liðsins skýtur því upp í 3. sæti deildarinnar með sex stig, stigi frá toppliði Randers, en hin tíu liðin í deildinni eiga öll eftir að spila sinn leik í umferðinni.
Danski boltinn Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Ibrahimagic framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira