Segir Man Utd hafa bætt sig ár frá ári en verði að byrja betur í ár Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. ágúst 2021 08:01 Ole Gunnar Solskjær vill sjá lið sitt byrja af krafti. Eitthvað sem vantaði í fyrra. EPA-EFE/Oli Scarff Ole Gunnar Solskjær segir að lið sitt Manchester United þurfi að byrja betur í ár en á síðustu leiktíð ætli það sér að berjast um enska meistaratitilinn allt til enda.
Norðmaðurinn var í viðtali við TV2 í heimalandinu þar sem hann fór yfir komandi tímabil. Ræddi hann standið á Jadon Sancho ásamt því að fara yfir hvað lið hans þarf að bæta í ár til að eiga möguleika á þeim stóra. „Hann fór í frí eftir Evrópumótið og hefur því miður verið aðeins veikur síðan hann skilaði sér heim. Hann hefur aðeins náð einni og hálfri æfingu með okkur svo hann hefur ekki æft mikið. Það mun taka tíma þangað til hann er kominn í form en hann mun reynast okkur einkar mikilvægur þegar líður á tímabilið,“ sagði Solskjær um Sancho. „Við verðum að byrja mótið vel. Í fyrra enduðum við í 2. sæti og árið þar í 3. sæti svo við erum að taka framförum. Við verðum samt að vera upp á okkar besta frá fyrsta tímabilsins til þess síðasta. Við vorum þéttir frá 1. nóvember til 10. maí á síðustu leiktíð þar sem við töpuðum aðeins einum leik. Við verðum að endurtaka það ef við ætlum að vera berjast um titla í mars, apríl og maí,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Man United, um tímabilið sem hefst í kvöld með leik nýliða Brentford og Arsenal. Manchester United tekur á móti Leeds United á Old Trafford í viðureign þar sem Man Utd skoraði sex mörk síðast. Ole Gunnar væri mjög svo til í endurtekningu á þeim leik og byrja tímabilið með flugeldasýningu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Sjá meira