Skoðun

Hvers vegna mega strákarnir okkar smitast?

Sigríður Elsa Álfhildardóttir skrifar

Ef það er eitthvað sem Íslendingar hafa sýnt í faraldrinum þá er það að landsmenn treysta vísindunum. Ég, sem verðandi heilbrigðisstarfsmaður, er gríðarlega þakklát fyrir það. Þegar vísindin sýndu fram á gagnsemi grímunotkunar þá settum við á okkur grímur. Þegar bóluefnin komu til sögunnar létum við ekki okkar eftir liggja heldur flykktumst í bólusetningu. Auðvitað eru það vonbrigði að þau takmarki ekki dreifingu veirunnar eins og vonir höfðu staðið til – en fækkun alvarlegra veikinda og dauðsfalla segir sína sögu.

Íslendingar eru hins vegar ekki allir jafnir þegar kemur að bólusetningum. Þvert á móti leyfum við helmingi þjóðarinnar að smitast af veiru sem getur valdið krabbameini í alvarlegustu tilfellunum. Strákar á Íslandi fá nefnilega ekki bólusetningu gegn HPV, ólíkt norskum kynbræðrum þeirra. Hvers vegna mega íslenskir strákar smitast og hvers vegna mega þeir smita óbólusetta einstaklinga?

Almennar bólusetningar, en bara fyrir stelpur

Á vef bandarísku sóttvarnastofnunarinnar segir að HPV sé algengasti kynsjúkdómurinn. Fólk sem er óbólusett gegn HPV sé þannig tiltölulega líklegt til að smitast einhvern tímann á lífsleiðinni. Aftur á móti eyðir ónæmiskerfi líkamans sýkingum af völdum veirunnar í langflestum tilfella innan nokkurra mánaða. Ef sýking nær hins vegar fótfestu og verður viðvarandi aukast líkur á krabbameini ef ekki er brugðist við.

Þannig er HPV-veiran „grunnorsök forstigsbreytinga- og krabbameins í legháls,“ eins og það er orðað á vef Landlæknis. Af þessum sökum eru íslenskar stúlkur bólusettar gegn veirunni við tólf ára aldur og er HPV-bólusetningin þar með hluti af almennum bólusetningum.

Strákarnir okkar eru hins vegar ekki bólusettir gegn HPV, þó svo að veiran geti valdið frumubreytingum sem leitt geta til krabbameins í hálsi, endaþarmi og typpi. Strákar geta vissulega fengið bóluefni gegn veirunni, en þá þurfa þeir að greiða fyrir það úr eigin vasa – ólíkt norskum strákum.

Ég er þeirrar skoðunar að íslenskum strákum eigi líka að bjóðast ókeypis bólusetning við HPV, rétt eins og stelpunum okkar, á grundvelli jafnréttis og betri lýðheilsu. Krabbamein er lýðheilsuvandamál sem bæði veldur einstaklingnum skaða sem og samfélagslegu tjóni. Eigum við þá ekki að reyna að koma í veg fyrir það?

Höfundur er sjúkraliðanemi og frambjóðandi Pírata í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×