Esbjerg náði í stig gegn lærisveinum Jensens Valur Páll Eiríksson skrifar 27. ágúst 2021 19:16 Ísak Óli Ólafsson hefur verið frá í þónokkurn tíma. Esbjerg Íslendingalið Esbjerg náði í sitt þriðja stig í dönsku B-deildinni í fótbolta er liðið gerði 1-1 jafntefli við Nyköbing í kvöld. Íslendingarnir tveir hjá Esbjerg komu ekki við sögu.
Esbjerg hefur átt í miklum vandræðum á leiktíðinni, innan vallar sem utan, en hinn umdeildi Peter Hyballa, sem var sakaður um eineltistilburði í starfi, var skipt út fyrir Roland Vrabec fyrr í mánuðinum. Illa virðist ganga að rétta úr kútnum en liðið leitar enn síns fyrsta sigurs í deildinni. Hinn 19 ára gamli Mads Larsen kom liðinu 1-0 yfir gegn Nyköbing í dag. Nyköbing eru nýliðar í deildinni eftir sigur í C-deildinni í fyrra en þjálfari liðsins er Claus Jensen, sem var liðsfélagi Hermanns Hreiðarssonar hjá Charlton Athletic í ensku úrvalsdeildinni auk þess að leika fyrir Fulham. Varnarmaðurinn Mikkel Juhl jafnaði snemma í síðari hálfleik fyrir Nyköbing og þar við sat. Liðinu tókst ekki að nýta sér liðsmuninn eftir að Ástralanum Con Ouzounidis í liði Esbjerg var vísað af velli tíu mínútum fyrir leikslok. Andri Rúnar Bjarnason var allan tímann á varamannabekk Esbjerg en Ísak Óli Ólafsson var ekki í leikmannahópi liðsins. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og er Esbjerg á botni deildarinnar með þrjú stig eftir sjö leiki, fyrir neðan bæði Hobro og Fremad Amager vegna lakari markatölu. Nyköbing er í sjötta sæti með níu stig.
Danski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira