Bíó og sjónvarp

Sundbíóið hefur fest sig í sessi á RIFF

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Óræður svipur þessarar ungu dömu gefur til kynna að eitthvað undarlegt sé á seyði í Sundhöll Reykjavíkur. Gestir þar fylgdust enda með nasískum uppvakningum elta norska læknanema á röndum í kvikmyndinni Död snö á RIFF.
Óræður svipur þessarar ungu dömu gefur til kynna að eitthvað undarlegt sé á seyði í Sundhöll Reykjavíkur. Gestir þar fylgdust enda með nasískum uppvakningum elta norska læknanema á röndum í kvikmyndinni Död snö á RIFF. RIFF/Kristinn

Nú fer að styttast í RIFF kvikmyndahátíðina. Upplifunarbíóið í Sundhöllinni verður aftur einn af sérviðburðum hátíðarinnar, enda hefur sundbíóið fest sig í sessi sem ein vinsælasta sýningin á RIFF.

Föstudagskvöldið 1. október kl. 19:30 verður hægt að hreiðra um sig í lauginni og horfa á költ klassíkina The Life Aquatic with Steve Zissou – Á sjó með Steve Zissou.

Stilla úr kvikmyndinni The Life Aquatic with Steve Zissou.

„Eins og undanfarin ár verður mikið lagt í upplifunina og gestir mega búast við óvæntum uppákomum. Myndin á vel við þar sem hún gerist að mestu á vatni eða neðansjávar og allir ættu að yfirgefa Sundhöllina með bros á vör,“ segir í tilkynningu frá hátíðinni.

Grínið er í hávegum haft, en einnig er hvert skot útpælt og litasamsetningin mikilvæg eins og leikstjórinn er þekktur fyrir. Sagan fjallar um sjávarkönnuðinn Steve Zissou sem er að vinna að nýrri heimildarmynd en félagi hans deyr í óvenjulegu hákarlaslysi. Steve og áhöfnin hans fara í leiðangur til að finna hákarlinn og lenda í ýmsum ævintýrum á leiðinni. 

„Áhersla hjá RIFF í ár er á tónlist, en The Life Aquatic with Steve Zissou er einna helst þekkt fyrir tónlistina sem hljómar í myndinni. Brasilíski söngvarinn Seu Jorge syngur ábreiður af David Bowie lögum út myndina, ásamt því að Sigur Rós á lag í einu af lykilatriðum myndarinnar. Takmarkaður fjöldi miða verður í boði þannig að gott er að tryggja sér miða sem fyrst,“ segir enn fremur í tilkynningunni. 


Tengdar fréttir

Holland í fókus á RIFF hátíðinni í september

RIFF - Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík verður sett með pompi og prakt þann 30. september næstkomandi. Þetta er í átjánda sinn sem hátíðin er haldin og þarf verða frumsýndar fjölbreyttar myndir eins og Benedetta eftir Paul Verhoeven.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.