Menning

Einn af risum franskrar kvik­mynda­sögu fallinn frá

Atli Ísleifsson skrifar
Jean-Paul Belmondo var ein af helstu stjörnum förnsku nýbyllgjunnar innan kvikmyndanna.
Jean-Paul Belmondo var ein af helstu stjörnum förnsku nýbyllgjunnar innan kvikmyndanna. Getty

Franski leikarinn Jean-Paul Belmondo, einn af risum franskrar kvikmyndasögu, lést í gær, 88 ára að aldri. Hann var ein af helstu stjörnum frönsku nýbylgjunnar innan kvikmyndanna.

Lögfræðingur Belmondo staðfesti andlátið í samtali við franska fjölmiðla í gær. Belmondo, sem hafði viðurnefnið Bébel í heimalandinu, lést á heimili sínu í París.

Belmondo verður einna helst minnst fyrir túlkun sína á honum uppreisnargjarna þjóf Michel í mynd Jean-Luc Godard, A Bout de Souffle, frá árinu 1960.

Hann fór einnig með hlutverk í myndunum Stavisky og Une Femme est une Femme. Þá lék hann á móti Sophiu Loren í myndinni Tvimur konum frá árinu 1960.

Hann fékk heilablóðfall árið 2000 og hvarf úr sviðsljósinu í nokkur ár eftir það.

Belmondo var tvígiftur og eignaðist fjögur börn. Þá átti hann í nokkrum ástarsamböndum sem mikið var fjallað um í fjölmiðlum, meðal annars með leikkonunni Ursulu Andress.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.