Lífið

Almar og Oddný hafa gert draumaheimilið að sínu: „Ég sá fyrir mér stórslys“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hugrún fór í heimsókn til Almars og Oddnýjar úr fyrstu þáttaröð af þáttunum Draumaheimilið.
Hugrún fór í heimsókn til Almars og Oddnýjar úr fyrstu þáttaröð af þáttunum Draumaheimilið. Stöð 2

Í fyrstu þáttaröð af Draumaheimilið fengu áhorfendur að fylgjast með þegar Almar Ögmundsson og Oddný María Kristinsdóttir völdu sér húsnæði.

Parið endaði á að kaupa við Marbakkabraut í Kópavogi. Hugrún Halldórs kíkti í heimsókn til þess að kanna hvernig þau eru búin að koma sér fyrir.

„Við máluðum allt nema stigaganginn, það er svolítið hátt til lofts,“ segir Oddný. „Ég sá fyrir mér stórslys meðal annars,“ segir þá Almar.

Parið er ekki komið með heita pottinn sem þau ætluðu að setja í garðinn en hafa þó gert ýmsar aðrar breytingar. Innlitið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: Almar og Oddný hafa gert draumaheimilið að sínu

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.