Búið að aflétta öllum takmörkunum í Danmörku Atli Ísleifsson skrifar 10. september 2021 08:00 Samkomutakmörkunum var fyrst komið á í Danmörku 11. mars 2020. Myndin er tekin í Nyhavn í upphafi þessa mánaðar. Getty Öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar var aflétt í Danmörku á miðnætti. Markar það endalok átján mánaða tímabils samkomutakmarkana í landinu. Ekki er útilokað að skólum í landinu verði lokað fari svo að faraldurinn fari á flug á ný.
Heilbrigðisráðherrann Magnus Heunicke greindi frá afléttingunum á blaðamannafundi 27. ágúst síðastliðinn þar sem hann sagði að Covid-19 yrði ekki lengur skilgreindur sem sjúkdómur sem ógni dönsku samfélagi. Þess í stað er Covid-19 skilgreindur sem „almennt hættulegur sjúkdómur“. Nú verða því ekki lengur gerðar kröfur um grímur, fjarlægðarmörk eða bólusetningarvottorð í landinu. 80 prósent fullbólusett DR segir frá því að Heunicke hafi sagt ákvörðunina tekna vegna hás hlutfalls bólusettra í landinu og sömuleiðis að Danir hafi náð góðum tökum á faraldrinum. Rúmlega 80 prósent Dana teljast nú fullbólusett og hafa dönsk stjórnvöld unnið að því í skrefum síðan í apríl síðastliðinn að opna samfélagið á ný. Samkomutakmörkunum var fyrst komið á í Danmörku 11. mars 2020, þegar Mette Frederiksen forsætisráðherra tilkynnti um lokun stórs hluta dansks samfélag. Sænsk stjórnvöld hafa tilkynnt að öllum takmörkunum verði aflétt í lok mánaðar. Í Noregi hafa stjórnvöld þar hins vegar ákveðið að fresta frekari afléttingum eftir að ný smitbylgja hófst þar á ný.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Danmörk Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira