Lífið

Innlit í einstakt 38 fermetra smáhýsi Bjargar í Spakmannsspjörum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vala Matt heimsótti Björgu Ingadóttur fatahönnuð.
Vala Matt heimsótti Björgu Ingadóttur fatahönnuð. Ísland í dag

Hinn margverðlaunaði hönnuður Björg Ingadóttir í Spaksmannsspjörum byggði ásamt manni sínum Finnboga Kristjánssyni pínulítið hús í sveitinni, þar sem hún kemur öllu fyrir sem hún þarf á að halda.

Í þessu skemmtilega smáhýsi er allt einfalt en líka smekklegt og töff og allt útpælt. Húsið er í heildina 38 fermetrar og er innréttað með furu og svörtum lit sem kemur vel út saman.

„Ég sá þetta hús á Facebook á þrjúhundruð þúsund og mér fannst það æði,“ segir Björg um söguna á bak við þetta verkefni hjónanna. Björg skoðaði húsið og þá var ekki aftur snúið. 

„Svo þegar það var komið hingað þá kom í ljós að það kostaði þrjúhundruð þúsund út af dottlu, það var rosa mikið sem þurfti að gera.“

Björg og Finnbogi byrjuðu á að klæða húsið að innan og utan og svo þurfti að draga nýtt rafmagn í það og skipta út gluggunum sem voru ónýtir.

„Það sem hefur komið voðalega mikið á óvart, er hvað ég er ótrúlega ánægð í litla krútthúsinu mínu.“

Hver millimeter nýttur

Þau hjónin hafa  verið mjög úrræðagóð og búið til mjög sérstakt svæði fyrir utan húsið með nokkurs konar torfhleðslu þar sem þau fá skjól og þar eru þau einnig með útisturtu. Svo útbjuggu þau setbaðkar sem er snilld í svona litlu húsi og þau földu ísskápinn í einum veggnum í eldhúsinu. 

„Þetta er bara eins og í sníðagerð, maður nýtir efnið til hins ítrasta.“

Björg segir að það þurfi ekki stórt hús til að líða vel og njóta.

„Maður þarf að liggja yfir hverjum einasta millimeter og hugsa, hvað þarf ég? Hér er enginn óþarfi en hér er ekkert sem mér finnst ekki fallegt.“

Vala Matt fór fyrir Ísland í dag í heimsókn í litla húsið hjá Björgu og Finnboga. Innlitið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Ísland í dag - Pínulítið íbúðarhús Bjargar með allt sem þarf!

Tengdar fréttir

Settu grill ofan í matarborðið á pallinum

Matgæðingarnir Reynir Þór Róbertsson og Vilborg Ása Fossdal létu sérsmíða einstakt grill sem sett var ofan í miðjuna á matarborðinu á pallinum þeirra. Hjónin höfðu lengi látið sig dreyma um að vera með svona grillborð en létu á dögunum drauminn rætast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.