Skoðun

Annað hugarfar á Alþingi

Gísli Rafn Ólafsson skrifar

Suma daga vakna ég og hugsa: „Hvað var ég að pæla þegar mér datt í hug að bjóða mig fram til Alþingis?“

Ég les fréttirnar og sé hvernig stjórnmálin eru á Íslandi. Ég sé hvernig starfsumhverfið er á Alþingi. Þar eru góð mál felld bara af því að þau komu frá röngum flokkum. Stundum eru meira að segja góð mál felld af því að valdaflokkarnir halda að þau komu frá röngum flokkum - en snýst síðan hugur þegar þeir átta sig á því að þetta var þeirra eigið mál eftir allt saman. Þetta er ekki gott starfsumhverfi og svo sannarlega ekki gott fyrir hag Íslendinga. Ég hristi hausinn og spyr sjálfan mig hvort þetta umhverfi sé fjögurra ára virði.

Ég fylgist með kosningabaráttunni og loforðunum sem flokkar fleygja fram. Ég horfi á þjóðfélagið, sé fátæktina, hlusta á sögurnar af kerfinu sem er brotið og ómannúðlegt. Ég tala við kjósendur á förnum vegi og heyri þeirra eigin upplifun af stjórnmálafólki og því kerfi sem þeir hafa innleitt. Ég átta mig á því að vandamálin sem við stöndum frammi fyrir eru mýmörg og hrannast bara upp vegna aðgerðaleysis stjórnmálamanna.

En þegar ég er við það að bugast og gefast upp á þessu öllu saman þá minni ég sjálfan mig á að þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég ákvað að bjóða mig fram. Ég tók þá ákvörðun að bjóða fram krafta mína af því að ég var búinn að fá nóg að þeirri hegðun og framferði sem tíðkast í stjórnmálum á Íslandi. Ég minnist þess að ég bauð mig fram til þess að berjast fyrir þau sem þurfa að upplifa fátækt og ranglæti í þessu ríka landi.

Alltaf rétta baráttan

Ég minni mig á að ég hef barist við flóknari viðfangsefni og brotið niður eiginhagsmuna- og kerfishyggju á alþjóðlegum vettvangi. Ég minni mig á að í öllu mínu starfi að mannúðarmálum víða um heim hef ég barist fyrir þá sem minna mega sín og að sú barátta hefur ávallt verið sú rétta. Hún gefur mér þá orku sem ég þarf til þess að framkvæma erfiða hluti.

Ég minni mig á að ég bauð mig fram til þess að tryggja framtíð barna minna og barnabarna. Þau þurfa að lifa við þær ákvarðanir sem við tökum vegna loftslagsmálanna í dag, bæði hér heima og á alþjóðlegum vettvangi.

Ég minni mig á að það er tilgangur lífsins að láta gott af sér leiða og vera málsvari þeirra sem ekki er hlustað á. Ég geng því ávallt inn í daginn fullur af orku og baráttuvilja, tilbúinn að takast á við allar þær hindranir sem aðrir reyna að leggja í götu mína. Það er hægt að bæta stjórnmálin á Íslandi, þetta er bara spurning um ákvarðanir og hugarfar. Hugarfar sem ég hef alltaf tileinkað mér og vona að geti smitað út frá sér á Alþingi - fái ég til þess stuðning.

Höfundur hefur starfað við mannúðarmál í áratugi og skipar 2. sæti framboðslista Pírata í Suðvesturkjördæmi




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×