Var boltasækir hjá liðinu sem hann er byrjaður að skora fyrir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. september 2021 15:30 Mikael Neville Anderson fagnar marki sínu gegn Silkeborg í gær. getty/Lars Ronbog Mikael Neville Anderson hefur farið vel af stað með AGF og skorað í báðum leikjum sínum fyrir liðið. Fyrir tíu árum var hann boltasækir hjá AGF.
Mikael skoraði annað mark AGF þegar liðið sigraði Silkeborg, 2-0, í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Auk Mikaels leikur Jón Dagur Þorsteinsson með AGF og Stefán Teitur Þórðarson er leikmaður Silkeborg. Mikael gekk í raðir AGF frá Midtjylland fyrr í þessum mánuði. Hann var í yngri liðum AGF og var meira að segja boltasækir á leikjum aðalliðsins. Fyrir leikinn gegn Silkeborg í gær fór Mikael í viðtal hjá Viaplay þar sem myndband af honum að fagna marki með leikmönnum AGF í leik frá 2011 var sýnt. Nu er han profil i AGF. Men allerede i 2011 dukkede @MikaelAnder10 op i Superliga-arkivet - dengang som bolddreng. #ultratwitteragf #sldk pic.twitter.com/K0FX0FChT2— Stine Jensen (@StiJensen) September 20, 2021 „Þetta er langt síðan en gaman að sjá þetta. Þau hafa greinilega unnið rannsóknarvinnuna sína, ég gef þeim það. Þetta sýnir bara enn þá meira hvað AGF snýst um fyrir mig. Nú ætla ég að vinna nokkra leiki. Það er gaman að sjá leikmenn og boltastrákana fagna saman. Þetta var stórt fyrir mig á þeim tíma og verður alltaf falleg minning frá mínum ferli,“ sagði Mikael. Landsliðsmaðurinn var valinn í lið umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni fyrir frammistöðu sína í leiknum gegn Silkeborg ásamt samherja sínum, sænska vinstri bakverðinum Eric Kahl. Rundens Hold i 9. spillerunde https://t.co/hOk6liRK7K#sldk | #rundenshold pic.twitter.com/Ge4mzw4WZe— 3F Superliga (@Superligaen) September 21, 2021 Mikael skoraði eina mark leiksins þegar AGF vann Vejle, 1-0, um þarsíðustu helgi. AGF er í 9. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með níu stig eftir níu umferðir.
Danski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira