Öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins í Arizona ákváðu að ráðast í endurskoðunina þrátt fyrir að Doug Ducey, ríkisstjóri og repúblikani, hefði staðfest úrslitin, ríkis- og alríkisdómara hafnað ásökunum um svindl og að tvær endurskoðanir og endurtalning hefðu þegar farið fram.
Það gerðu þeir einnig þrátt fyrir háværar mótbárur demókrata og repúblikana sem sáu um framkvæmd kosninganna í Maricopa-sýslu, fjölmennustu sýslu Arizona. Lögðu þeir hald á kosningavélar og fleiri en tvær milljónir atkvæða frá Maricopa.
Fengu þeir einkafyrirtækið Cyberninjas til að sjá um endurskoðunina en eigandi þess hafði þá tekið undir stoðlausar ásakanir Trump, fyrrverandi forseta, um kosningasvik. Sérfræðingar gagnrýndu aðferðir Cyberninjas við endurskoðunina og sögðu þær viðvaningslegar og hlutdrægar, að sögn Washington Post.
Sýndu að Biden fékk enn fleiri atkvæði og Trump enn færri
Úttektin hefur dregist verulega á langin en henni átti upphaflega að ljúka í sumar. Bandarískir fjölmiðlar segja nú að til standi að kynna niðurstöður úttektar Cyberninjas í dag. Þeir hafa margir komist yfir drög að skýrslu fyrirtækisins.
Drögin staðfesta ekki aðeins sigur Joe Biden heldur sýna að munurinn á þeim Trump var í raun örlítið meiri en í opinberum tölum. Biden fékk 99 fleiri atkvæði samkvæmt úttektinni en Trump 261 atkvæði færra, að sögn New York Times.
Talsmaður endurskoðunarinnar segir að skýrsludrögin séu lík endanlegri skýrslunni. „Voru stófelld svik eða eitthvað? Það lítur ekki þannig út,“ segir hann.
Niðurstöðurnar virðast kippa fótunum undan ásökunum Trump sem vonaðist til að endurskoðunin í Arizona yrði sú fyrsta af mörgum sem sýndu að hann hefði verið raunverulegur sigurvegari kosninganna.
Skýrsluhöfundar virðast reyna að baktryggja sig gegn væntanlega hörðum viðbrögðum fyrrverandi forsetans með því að segja að það geti verið að kjörstjórnir hafi tekið við ólögmætum atkvæðum sem sýslurnar hafi svo talið. Segja þeir að frekari rannsóknar sé þörf.
Yfirvöld í Marcopa-sýslu, þar sem repúblikanar fara einnig með völdin, tístu um drögin að skýrslunni í gær og sögðu þau staðfesta opinberar tölur.
„Því miður er skýrslan líka full af mistökum og röngum ályktunum um hvernig Maricopa-sýsla stýrði kosningunum árið 2020,“ tístu sýsluyfirvöld.
Unfortunately, the report is also littered with errors & faulty conclusions about how Maricopa County conducted the 2020 General Election.
— Maricopa County (@maricopacounty) September 24, 2021
Kostnaðurinn við úttektina á kosningaúrslitunum er sagður hafa numið um 5,7 milljónum dollara, jafnvirði meira en 730 milljóna íslenskra króna. Hægriöfgahópar og stuðningsmenn Trump fjármögnuðu verkið að mestu leyti.