Lífið

Dýrið til­nefnd til European Discovery verð­launa

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Kvikmyndin Dýrið hefur verið tilnefnd til Prix FIPRESCI verðlaunanna sem eru hluti af Evrópsku kvikmynda verðlaununum og eru veitt árlega til leikstjóra með sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd.
Kvikmyndin Dýrið hefur verið tilnefnd til Prix FIPRESCI verðlaunanna sem eru hluti af Evrópsku kvikmynda verðlaununum og eru veitt árlega til leikstjóra með sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd.

Kvikmyndin Dýrið hefur verið tilnefnd til European Discovery verðlauna. Verðlaunin sem kallast Prix FIPRESCI eru hluti af Evrópsku kvikmyndaverðlaununum og eru veitt árlega til leikstjóra með sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd.

Evrópska kvikmyndaakademían hefur tilkynnt þær sex myndir sem tilnefndar eru til verðlaunanna. Dýrið hlýtur tilnefningu ásamt myndunum Beginning, Playground, Pleasure, Promising Young Woman og The Whaler Boy.

Það mun svo koma í hlut yfir fjögur þúsund meðlima Evrópsku kvikmyndaakademíunnar að velja verðlaunahafann. Það mun svo koma í ljós hver hlýtur Prix FIPRESCI verðlaunin þegar Evrópska kvikmyndahátíðin verður haldin þann 11. desember.

Kvikmyndin Dýrið, eða Lamb eins og hún heitir erlendis, vakti gríðarlega athygli á frumsýningunni á Kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem hún fékk verðlaun fyrir frumleika í Un Certain Regard keppninni og erlendir fjölmiðlar kepptust við að ausa hana lofi.

Dýrið segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari sem búa í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að ala hana upp sem sitt eigið afkvæmi.

Myndin er eftir Valdimar Jónsson og er þetta hans fyrsta kvikmynd í fullri lengd. Stórleikkonan Noomi Rapace fer með aðalhlutverk ásamt Hilmi Snæ Guðnasyni og Birni Hlyni Haraldssyni.


Tengdar fréttir

Dýrið frumsýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum í dag

Íslenska kvikmyndin Dýrið. eða Lamb eins og hún heitir erlendis, verður sýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum í dag. Aldrei áður hefur íslensk kvikmynd fengið jafn mikla almenna dreifingu vestanhafs.

Dýrið: Stiklan spillir flottri mynd

Dýrið er fyrsta kvikmynd Valdimars Jóhannssonar í fullri lengd. Hún skartar Hollywood-stjörnunni Noomi Rapace í aðalhlutverki.

Dýrið slær í gegn á Fantastic Fest í Texas

Íslenska kvikmyndin Dýrið sló í gegn á Fantastic Fest en hátíðin fór fram í Austin, Texas og lýkur á morgun. Myndin hefur hlotið lof bæði áhorfanda og gagnrýnenda. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.