Naut þess ekkert að eyðileggja draum Gerrards Sindri Sverrisson skrifar 14. október 2021 12:01 Steven Gerrard rann til í grasinu og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Demba Ba. Demba Ba segist ekki hafa verið með það í huga að „eyðileggja draum Liverpool“ þegar hann skoraði markið sem leiddi til þess að Englandsmeistaratitillinn rann Liverpool úr greipum árið 2014.
Ba nýtti sér það þegar Steven Gerrard rann til á Anfield, í apríl 2014, og komst óáreittur að marki Liverpool og skoraði. Chelsea vann svo leikinn 2-0 en Liverpool þurfti aðeins jafntefli og sigur úr síðustu tveimur leikjum sínum til að vinna titilinn. Þá hafði Liverpool ekki orðið Englandsmeistari síðan 1990 en langri bið félagsins lauk svo í fyrra. Engu að síður eru mistök Gerrards mörgum enn í fersku minni og Ba segir það leitt að minningin um þau varpi dálitlum skugga á þá knattspyrnugoðsögn sem Gerrard sé. Steven Gerrard og Demba Ba kljást í leiknum örlagaríka vorið 2014.EPA/PETER POWELL „Ég áttaði mig ekki á því hvað þetta var mikið mál fyrr en nokkrum árum seinna þegar fólk var enn að tala um þetta. Það er enn talað um þetta! Þetta var mikið áfall fyrir þá. Við nutum þess ekkert að eyðileggja drauminn þeirra. Við nutum þess bara að vinna,“ sagði Ba í ítarlegu viðtali við The Athletic. „Menn gera mistök og aðrir nýta sér þau. Það er stórkostlegt hvað Steven Gerrard hefur gert fyrir fótboltaheiminn. En svona er lífið, því miður. Það enda ekki allar sögur eins og ævintýri,“ sagði Ba.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sjá meira