Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍBV 27-21 | Góður fyrri hálfleikur lagði grunninn að góðum sigri Valsmanna Andri Már Eggertsson skrifar 17. október 2021 18:34 Valur ÍBV Olís deild karla sumar 2021 handbolti HSÍ Elín Björg Valsmenn höfðu betur í stórleik umferðarinnar í Olís-deild karla þegar Eyjamenn kíktu í heimsókn á Hlíðarenda, 27-21. ÍBV skoraði fyrsta mark leiksins og var það í eina skiptið sem liðið komst yfir í leiknum. Þegar tæplega tíu mínútur voru liðnar af leiknum var Valur tveimur mörkum yfir 6-4. Dánjal Ragnarsson skoraði fjórða mark ÍBV en eftir mark hans kom óskiljanlegur kafli hjá ÍBV. Eyjamenn áttu í miklum vandræðum með hreyfanlega vörn Vals. Björgvin Páll Gústavsson átti stórleik í fyrri hálfleik og dró tennurnar úr leikmönnum ÍBV. Björgvin Páll varði 12 bolta í fyrri hálfleik og var með 63 prósent markvörslu í hálfleik. Á 28. mínútu skoraði Kári Kristján Kristjánsson 5 mark ÍBV í leiknum. Rúmlega fimmtán mínútna kafli sem ÍBV tókst ekki að skora. Valur var þá 13-5 yfir og var Björn Viðar Björnsson, markmaður ÍBV, eini með lífsmarki á þessum kafla og sá til þess að Valur skoraði aðeins 13 mörk. Staðan í hálfleik 14-7. Eftir afleiddan fyrri hálfleik byrjaði ÍBV síðari hálfleik af miklum krafti. Gestirnir frá Vestmannaeyjum skoruðu fyrstu tvö mörkin og minnkuðu muninn niður í fimm mörk. Sigtryggur Daði Rúnarsson fékk tveggja mínútna brottvísun í kjölfarið og Valur komst betur inn í leikinn. Eftir að Valur náði betri takti í seinni hálfleik var aðeins spurning hversu stór sigur Vals yrði. Valur vann á endanum sex marka sigur 27-21. Af hverju vann Valur? Vörn og markvarsla Vals í fyrri hálfleik var stórkostleg. Vörn Vals var afar hreyfanleg og þegar leikmenn ÍBV náðu að brjótast í gegn þá varði Björgvin Páll Gústavsson nánast hvert einasta skot ÍBV. ÍBV skoraði aðeins 21 mark í öllum leiknum sem mun aldrei duga til sigurs i handboltaleik. Hverjir stóðu upp úr? Björgvin Páll Gústavsson, markmaður Vals, átti stórleik. Á tímapunkti í fyrri hálfleik var Björgvin Páll með 71 prósent markvörslu. Björgvin Páll endaði á að verja 15 bolta í leiknum. Agnar Smári Jónsson byrjaði á að fá tveggja mínútna brottvísun þegar hann var varla búinn að vera inn á vellinum í 10 sekúndur. Agnar Smári mætti svo aftur inn á og spilaði vel. Agnar endaði á að skora 5 mörk úr 7 skotum. Benedikt Gunnar Óskarsson er að stimpla sig afar vel inn í lið Vals. Benedikt stýrði miðjunni afar vel og skoraði 3 mörk ásamt því að skapa helling af færum fyrir liðsfélaga sína. Hvað gekk illa? Sóknarleikur ÍBV var í molum í fyrri hálfleik. ÍBV skoraði aðeins 7 mörk og var útilína liðsins aðeins með tvö mörk í fyrri hálfleik. Hvað gerist næst? Næsta sunnudag mætast KA og Valur í KA-heimilinu klukkan 18:00. Næsti leikur ÍBV er gegn Fram 29. október. Leikurinn hefst klukkan 18:00. Snorri Steinn: Að fá á sig sjö mörk í fyrri hálfleik er ásættanlegt Snorri Steinn Guðjónsson var ánægður með leik dagsinsVísir/Hulda Margrét Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var ánægður með sex marka sigur á ÍBV. „Þetta var heilsteyptur leikur hjá okkur. Við tökum snemma öll völd á leiknum og hjálpaði Björgvin Páll mikið til, hann var rosalegur í fyrri hálfleik. Ég er óánægður með dauðafærin sem við klikkuðum á,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson eftir leik. Valur fékk aðeins á sig sjö mörk í fyrri hálfleik og var Snorri Steinn ánægður með þá tölfræði. „Þegar ÍBV náði að slíta okkur í sundur þá varði Björgvin Páll sem hjálpaði okkur mikið. Að fá á sig sjö mörk í hálfleik er fínt, ég get lifað með því.“ Útilína Vals var á tímabili skipuð ungum og reynsluminni leikmönnum og var Snorri ánægður með þeirra framlag. „Þeir voru geggjaðir. Þeir eru þarna af ástæðu svo þetta kemur ekkert á óvart. Agnar Smári átti líka góða innkomu.“ „Heilt yfir var þetta mjög góður leikur. Fyrir utan dauðafærin sem við klikkuðum á,“ sagði Snorri Steinn sem fagnar fertugs afmæli sínu í dag. Olís-deild karla Valur ÍBV
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti